Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Mervyn King

$
0
0

lávarður sótti Háskólann heim á dögunum.

Hann var ákveðinn í máli um það að Evran hefði aldrei verið mögulegur sameiginlegur gjaldmiðill svo ólíkra ríkja sem hana upp tóku.

Svo segir í frétt í Mogga:

 "King sagði að evrusmiðirnir hefðu sýnt algert skeytingarleysi og glannaskap því margir þeirra hefðu viðurkennt að evrusvæðið í þeirri mynd sem til var stofnað gæti aldrei staðist án verulegra og reglubundinna erfiðleika.

King sagði að gjaldmiðilssamstarf af þessu tagi hefði hvergi staðist til lengdar í mannkynssögunni án sameiginlegra ríkisfjármála.

Ýmsir evrusmiðir hefðu viðurkennt þetta en bættu því við að það væri ekkert vandamál því að í næstu fjármálakreppu myndu menn sjá að evran stæðist ekki án eins stórs ríkissjóðs og í þeirri kreppu myndu menn sannfærast um að stíga hið nauðsynlega skref til eins stórríkis.

Nú er hins vegar liðinn um áratugur frá því að evrukreppan hóf innreið sína og þrautseigir þýskir og fleiri andstæðingar frekari samvinnu í ríkisfjármálum hefðu herzt verulega í andstöðu sinni við sameiginleg ríkisfjármál.

Því væri ekki séð fyrir endann á evruvandanum."

Ennfremur sagði King lávarður að fyrr eða síðar yrði Þýskaland að viðurkenna að suðrænni þjóðirnar sem búa við lægra framleiðslustig myndu aldrei geta borgað skuldirnar til baka sem leiddu af bankahruninu þegar Icesave helltist fyrir okkur Íslendinga í framhaldi af því.

Bretar hurfu aldrei frá pundinu sínu sem sýndi sig að geta fallið eins og íslenska krónan. Gríska evran gat ekki fallið og því eru kenningar íslensku evruaðdáendanna hæpnar þegar kemur að þeirri spurningu, hver komi með Evrur til Íslands ef við kollsiglum okkur eins og svo oft áður hefur gerst. 

Svo var kveðið í þá daga:

"Situr einn með sollið fés

Seðlabanka Jóhannes,

fellir gengið fyrsta des.

fer þá allt til helvítes."

Við fórum þess vegna aldrei alla leið til helvítes 2009 eða fyrr þar sem að við gátum prentað krónur sem við gætum ekki gert eftir að Evran hefði verið upptekin  sem gjaldmiðill Íslands.

Þá ábyrgð er ekki líklegt að finna innan íslenskra verkalýðsfélaga sem gæti afstýrt slíkum viðburði með skynsemi.

En nú ríkir aðeins vopnahlé við sósíalista í svonefndum kjaramálum sem stjórnast af lögum frá því fyrir seinni heimsstyrjöld. Það geta því öll veður skollið á á Íslandi sem gera upptökur erlends gjaldmiðils útilokaða meðan leikreglur verða ekki nútímavæddar.

Það var happ að fá herra Mervyn King lávarð, fyrrum bankastjóra Englandsbanka,  til landsins til þess að eiga orðastað við þá íslensku Evruspámenn sem hæst fara og ræða við þá um draumsýnir þeirra um stöðu Íslands í Útópiu þeirra.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922