Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

...norpaði hún Kolbrún nakin

$
0
0

svo nett og umhverfisvæn. Svo var niðurlag snjallrar vísu eftir Jón Kristjánsson fyrir margt löngu. Ég man ekki alveg fyrri partinn um bárujárnshúsið til að fara með hann.

Og ekki var önnur vísa verri sem einhver annar orti í orðastað Jóns. Mig minnir að hún hafi verið svona: "Í tvílyftu timburhúsi, titraði Kolbrún öll, og þar hefði Jón viljað vera og vinna umhverfisspjöll."

En það var hann Sveinn Rósinkrans Pálsson sem skrifaði svo á sitt blogg sem vakti athygli mína:

"Nú er komið í ljós að hinir umhverfisvænu menga meira en jeppakarlarnir í úthverfunum.

Þetta stafar af því að flugvélar brenna mun meiri olíu en jeppar og umhverfisvæna fólkið í miðbænum fer oftar til útlanda.

Einnig fer umhverfisvæna fólkið oftar í strætó og einn strætó mengar jafn mikið og 50 bílar, þannig að jafnvel fullur strætisvagn veldur mun meiri CO2 útblæstri en samsvarandi fjöldi einkabíla. Yfirleitt eru strætisvagnarnir hálf tómir og valda því gríðarlegum umhverfisspjöllum."

Er ekki Borgarstjórnarmeirihlutinn í því að lækka hámarkshraða, breyta akstursstefnum í trássi við íbúa,setja götur niður í stokka með lægri hámarkshraða, þar sem útblæstrinum verður safnað saman í einn stóran?

Og ekki dregur sjálfur kolefnispáfinn og olíufjárfestirinn AlGore á einkaþotunni af sér í umhverfismálunum.

 

Er þetta ekki allt fremur umhverfismengandi en hitt fyrir hana Kolbrúnu?

 

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922