Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Bensínið allsstaðar yfir 200 kalli

$
0
0

er frétt í dag.10 % hækkun á heimsmarkaði þýðir aðeins 3.7 % hækkun á lítranum hér.Gjaldtaka ríkisins blasir því við og líka ömurlegt ástand vegakerfisins okkar  sem skattarnir áttu að bæta.

Hér í Florída kostar bensínið víða 2.5 $ gallónið sem er 3.79 L. Lítrinn þá svona 80 kall á núverandi gengi dollars á 122 kall. Mikið er um það hér að þeir borgi sem nota vegi með mislægum gatnamótum í formi vegatolla. En tími mislægra gatnamóta er sem kunnugt er liðinn í Reykjavík samkvæmt Degi B. Eggertssyni.

Hversu mikil búbót væri það fátækum Íslendingum eins og einstæðum mæðrum með mörg börn  að geta keypt ódýrara bensín?

Vegatollar eru víðast á stærri vegum hérna en ekki innan bæjanna. Hugsanlega gæti bensín á Íslandi lækkað í framtíðinni á móti vegatollum ef við gætum hugsað þá hugsun til enda hversu mikið efnahagslífið og þar með lífskjörin byggjast á bílnum og bensíninu en ekki einhverju orkuskiptabulli og kolefnisgjöldum.

Drottni sé lof og dýrð fyrir Trump.

Vonandi lækkar bensínið niður fyrir 200 kall á Íslandi einhvern tímann.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922