er midjan.is undir ritstjórn þeirra Egilssona, Sigurjóns M. og FjögurraBlaðaSmára.
Lítið dæmi um mannhatrið sem veður þarna uppi þegar fjallað er um að reyna að lina þjáningar fólks í Venezuela af völdum kommúnismans sem þeir aðhyllast:
"Hjálpargögnin sem eru við landamæri Venesúela og Kólumbíu nú eru að viðlíka verðmæti, dropi við hliðina á þeim verðmætum sem viljugar þjóðir halda frá Venesúela. Nú þekki ég Maduro ekki neitt, en ég þekki til haukanna í Washington. Það er ekki hægt að finna hræsnisfyllra ofbeldispakk í víðri veröld, þetta er sá hópur núlifandi manna sem hefur flest mannslíf á samviskunni og mesta eymd meðal fólks.
Það er ómögulegt að nokkur heiðvirð manneskja taki þátt í leik þeirra, sem ætíð er háður í þágu auðkýfinga í Bandaríkjunum en snýst aldrei nokkurn tímann um mannúð, lýðræði og frelsi. Þetta er pakk sem telur sig hafa rétt til að myrða, pynta, kúga og svelta alla sem hentar þeim hverju sinni; algjörlega ærulaust fólk, sannkallað skítapakk."
Skrif þessara bræðra virðast heldur eiga heima á tímum kaldastríðsins þegar menn hótuð hver öðrum tortímingu í kjarnorkustríðum.
Það er makalaust ef þetta er tónninn sem á að stýra umræðum á Íslandi árið 2019. Það er verið að setja lög gegn hatursáróðri og mönnum bannað að tjá skoðanir sínar ef þær falla ekki í viðurtekið kram.
Þá veður svona soramiðill uppi.