er að hlusta ekki á aðvaranir vísindamanna við innflutningi fjölónæmra sýkla og vírusa.Svo segir í Morgunblaðinu á forsíðu:
"Karl G. Kristinsson, prófessor í sýklafræði og yfirlæknir á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans, leggst gegn þeim áformum að heimila innflutning á ógerilsneyddum mjólkurafurðum.
„Það bara má ekki gerast. Ég held að það sé ennþá möguleiki að bregðast við því,“ segir hann en fyrir liggur lagafrumvarp sem heimilar slíkan innflutning.
Að sögn Karls getur verið mæðivisnu veira í ógerilsneyddri sauðaog geitamjólk. „Í Evrópu, og nánast alls staðar í heiminum, er mæðivisnu veiran landlæg. Hún hefur ekki verið á Íslandi mjög lengi en hún barst til landsins 1933, með innfluttu sauðfé frá Þýskalandi. Hún dreifðist um allt land og tók langan tíma að uppræta hana.
Áður en tókst að uppræta veiruna hafði hún lagt að velli 150.000 kindur og þurfti að lóga 600.000 fjár.“ Hann segir íslenskt sauðfé mjög móttækilegt fyrir veirunni og ekki þurfi nema eina veiru til að sýkja sauðfé. Veiran hefur verið í Evrópu í árhundruð og því hefur sauðfé þar aðlagað sig veirunni. „Við viljum ekki fá þetta inn aftur.“ »1
Ég man vel þegar við vorum að drepa mæðiveikar rollurnar í Borgarfirðinum í stríðslokin með helgrímum. Þessir vesalingar börðust við að ná andanum og skulfu eins og hríslur.Þetta var skelfilegt að horfa á.
Nú á að fórna öllu öryggi fyrir skammtíma gróðasjónarmið kramara undir yfirskyni viðskiptafrelsis Evrópusambandsins.
Það deyja núna 30.000 manns í Evrópu einni af völdum ónæmra sýkla.Hvað viljum við mörg dauðsföll hér? Hvernig líst okkur á 10 Íslendinga á altari Bónusar og Krónunnar?
Það er hreint brjálæði að hlusta ekki á vísindamenn okkar og taka áhættuna af dauðsföllum af þessum völdum.