getur manni dottið í hug þegar maður hefur heyrt þingmenn Sjálfstæðisflokksins tala um 3. orkupakkann. Það er helst á þeim að skilja að þeir ætli að samþykkja hann því hann skipti engu máli.
Á Útvarpi Sögu var fólk spurt um hvernig því litist á hugmyndir Bjarna Benediktssonar um Þjóðarsjóð.82 % lýstu sig andvíga hugmyndinni.
Margir innhringendanna grunuðu forystu Sjálfstæðisflokksins og sérstaklega formanninn um græsku í þessu sambandi. Sumir fóru í framhaldi að spyrja um stöðu hlutfjárins sem voru einir 2 milljarðar sem Bjarni hafði forystu um að leggja í stofnun banka í Asíu og virtust fullir tortryggni í hans garð vegna þessa.
Styrmir Gunnarsson skrifar svo:
"Það er athyglisvert í því sambandi að reiðin í grasrót Sjálfstæðisflokksins vegna orkupakka 3 er svo mikil, að það fyrsta sem sagt var við gamlan mann, sem kom í Valhöll í síðustu viku til þess að hlusta á fyrirlestur um Alzheimer var þetta:
"Ef þeir samþykkja orkupakkann, hrynur flokkurinn".
Það skyldi þó aldrei vera að einstök flokksfélög Sjálfstæðisflokksins fylgdu fordæmi brezkra íhaldsmanna og lýstu vantrausti á þá þingmenn flokksins, sem það kynnu að gera?"
Hingað til hefur kostum samþykktar ekki verið lýst fyrir mér af neinum þessara þingmanna. Heldur ekki hefur mér verið svarað um það hvort við gætum neitað viðtöku sæstrengs ef einhver kæmi með hann til landsins.
Talar forystan sama mál og flokkurinn?