að ræða sjónarmið varðandi sæstrenginn. Fundarstjóri Sjálfstæðisfélagsins, Sigurður Sigurbjörnsson, öskraði mig niður á opnum fundi á síðasta laugardag þegar ég vildi skjóta inn athugasemd um 3. orkupakkanna sem fleiri en einn fundarmanna höfðu þegar rætt.
Kolllegi Bjarni Jónsson ritar svo um þau sjónarmið sem ég vildi kynna:
"
Almennt er líka lagt bann við takmörkunum á millilandaviðskiptum með vöru og þjónustu í EES-samninginum. Með öflugan aflsæstreng á milli Íslands og útlanda, þar sem íslenzk yfirvöld mega ekki grípa í tauma rekstrarins fyrr en allt er komið í óefni, setur allt þjóðlífið í uppnám. Þetta er aðeins eitt af mörgum atriðum, sem gera lögsögu ACER/ESB yfir millilandatengingum orkuríkrar eyjar norður í Atlantshafi gjörsamlega óaðgengilega fyrir eyjarskeggja.
Hvernig verður að rökstyðja höfnun á Ice-Link eða NorthConnect ?:
Það er aðeins hægt, ef kostnaðar- og nytjagreining leiðir til þeirrar niðurstöðu, að verkefnið sé ekki samfélagslega arðsamt, þar sem samfélagið er EES, og ACER viðurkennir, að niðurstaðan sé rétt fengin. Samkvæmt samræmdri aðferðarfræði kostnaðar- og nytjagreiningar, sem mælt er fyrir um í gerð #347/2013, má ganga út frá því sem vísu, að öll PCI-verkefni, og ofangreind verkefni eru slík forgangsverkefni, séu samfélagslega arðsöm.
Höfnun er t.d. ekki unnt að rökstyðja með því, að yfirvöld í viðkomandi landi vilji halda tiltölulega lágu orkuverði til almennings. Frá sjónarhóli ESB jafngildir slíkt ríkisstuðningi og mismunun ESB-borgara og ESB-iðnaðar. Íslendingar virkjuðu orkulindir og iðnvæddust af takmörkuðum efnum, en samt án þess að láta af hendi stjórn á erfðasilfrinu. Nú ætla stjórnvöld að glopra þessari stjórn úr höndum sér með endemis klaufagangi og færa hana á silfurfati til ACER og framkvæmdastjórnar ESB. Þetta er í senn hneyksli og sorgarsaga."
Þessi sjónarmið eru ekki leyfð á fundum hjá Sjálfstæðisfélagi Kópavogs og bönnuð þar.