Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Á virkilega ?

$
0
0

að verðlauna kújónana sem stjórnuðu fjármálum Reykjanesbæjar með því að gefa þeim eftir skuldir?

Á ég að verðlauna bæjarstjórnina í Reykjanesbæ  fyrir óábyrga hegðun í fjármálum, sem allir sáu hvert stefndi þegar þeir voru við völd? Á ég að lækka lífeyrinn minn til frambúðar vegna fíflaskapar óábyrgra pólitískra dilletanta?  Af hverju á Kópavogur að stritast við að borga? Af hverju eiga Dagur Bé og EssBjörn að fá að velta sinni heimskulegu og óábyrgu óreiðu yfir á Orkuveituna og láta miklu fleiri en Reykvíkinga borga vitleysuna með sér? 

Af hverju eiga heimilin að borga allt upp í topp í Íslandsbanka ef Reykjanesbær á ekki að gera það? Af hverju á að verðlauna stjórnendurna þar fyrir fíflaskap í fjármálum þegar almenningur er rukkaður um hvern eyri og kostnað til viðbótar? Af hverju á Reykjanesbær að fá afslátt hjá bönkunum en ekki almenningur?  

Engan afslátt til Reykjanesbæjar. Er honum nokkur vorkunn fyrir að missa sjálfstæðið? Á hann það barasta ekki virkilega skilið?


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922