Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Falsfréttir

$
0
0

frá Fjögralaufasmára:

Í nýrri könnun sem Gallup framkvæmdi meðal félagsmanna Eflingar-stéttarfélags kemur í ljós afdráttarlaus stuðningur við kröfugerð félagsins í kjarasamningum. Tæplega 80% félagsmanna telja hana sanngjarna og sama hlutfall segist hlynnt því að fara verkfall til að knýja á um launakröfur verkalýðsfélaganna.

Það er ekki síst erlendur hluti vinnuaflsins sem að fylkir sér bak við launakröfurnar en samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar hefur stuðningur við kröfur og verkfallsaðgerðir auk væntinga um launahækkanir í kjölfar kjarasamninga tilhneigingu til að vera meiri meðal félaga af erlendum uppruna.

Þá leiðir könnunin í ljós mikla aukningu á fjárhagsáhyggjum meðal félagsmanna frá launakönnun sem framkvæmd var í ágúst síðastliðnum. En þær aukast um 16% á milli mælinga úr 47% sem hafa miklar eða mjög miklar áhyggjur í kjarakönnun í ágúst 2018 í 63% í janúar 2019. Þetta eru mestu fjárhagsáhyggjur sem hafa mælst í könnunum Eflingar frá hruni.

Spurningarnar voru lagðar fyrir fullvinnandi félagsmenn Eflingar með netkönnun á tímabilinu 19.-26. janúar. Haft var samband við 4758 félagsmenn og þar af svöruðu 1350. Niðurstöður voru vigtaðar út frá atvinnugrein og uppruna."

Hið rétta er að 28 % 4768 félagsmanna svarar og af þeim vilja 1080 eða 22.7 % félagsmanna fara í verkfall.

Sem sagt alger einhugur að baki Gunnari Smára til að eyðileggja sem mest hann má. Bitur greyið eftir skipbrotin í kapítalismanum og framleiðir því falsfréttir með sogrörið sitt tryggt ofan í sjóðum Eflingar.

 

Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922