var heiti á æsilegri stríðsmynd úr seinni heimstyrjöld.Hún fjallaði um að menn fóru fram úr sér í sókninni.
Byggð var glæsileg göngubrú á Breiðholtsbraut við Shellstöðina fyrir 145 milljónir. Verktakafyrirtækið Skrauta byggði brúna með miklum ágætum.
Á Miklubraut eru tvenn gönguljós frá Kringlumýrarbraut niður á gamla Miklatorg. Þar á spila gangandi vegfarendur og stöðva umferðina reglulega á nokkurra mínútna fresti. Öll umferð truflast upp á Háaleitisbraut.
Á brúnni góðu hef ég aðeins tvisvar séð manneskju og keyri ég þó þarna minnst tvisvar á dag. Miklubrautarstoppin kann ég utanað.
Af hverju er ekki byggðar göngubrýr á Miklubrautina og greitt fyrir bílaumferðinni?
Svarið er pólitískt þar sem meirihlutinn í Reykjavík er á móti greiðri bílaumferð. Þess í stað eru brýr byggðar þar sem þeirra er lítil þörf. Þeir sem eiga erindi á Landspítalann eiga að hjóla en ekki keyra þangað enda varla bílastæði að fá þar.
A Bridge too far.