úr Seðlabankanum. Gunnlaugur Blöndal hefur verið læstur niður með Makintosdósinni sem sögð er geyma gullforða Íslendinga.
Langar engan til að fá upplýst hvaða starfskona Seðlabankans varð þessarar aðgerðar valdandi? Eiga þær allar að liggja undir grun?
Höfðu þessar myndir kannski áhrif á það að gengisfellingarnar hjá Jóhannesi urðu stærri en ella? Eða stýrivextirnir urðu hærri hjá Mávi en þörf var á? Hver veit?
En það er loks búið að fjarlægja klámið úr Seðlabankanum.