Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Drög að sjálfsmorði

$
0
0

á efnahag þjóðarinnar hafa verið lögð. Guðmundur Gunnarsson, sem gárungar í Sundlaugunum kölluðu stundum "Guðmund bolsévikk" í gamla daga þegar hann var róttækur í Rafiðnaðarsambandinu, boðaði valdatöku iðnaðarmanna eftir að allt hefur logað í verkföllum í mars í Silfri Egils rétt áðan.

Guðmundur þessi Gunnarsson hefur fyrir löngu spáð þessu ástamdi sem framundan er og sá ekki ástæðu til að breyta henni í þættinum. Raunsær maður greinilega Guðmundur.

Þórólfur Matthíasson prófessor lýsti ástandinu í kjaramálum sem bútasaumi, þar sem tilraunir til kjarabóta leiðast út í hverskyns sérmál svo sem húsnæðismál, vaxtamál og þvílíkra sératriða.Því væri erfitt að nálgast verkefnið svo vel sé með því að ræða áhrifaþætti eins og skattleysismörk og tengingar þeirra við annað.

Það er ekki furða þó að verkefnið hin íslensku kjaramál séu orðin svo risavaxin að óleysanlegt virðist hverjum þeim sem virðir það fyrir sér úr fjarlægð.  Sú staðreynd sem Vilhjálmur Bjarnason lýsti um 2.4 % raunverulegar kjarabætur á tveimur áratugum  breyta litlu í heimi hinna nýju verkalýðsforingja sem fyrir kröfugerðinni fara núna. Allir hlutir skulu þar nú gjörðir að nýju eftir nýjum hagfræðilögmálum. Bankasala eða ekki breyta litlu í þeim heimi sem í vændum verður.

Margir kjarahópar eiga svo eftir að bætast í hópinn sem nú þingar með allar sínar sérkröfur. Það getur hvarflað að manni að reyna að komast úr landi áður en ballið byrjar því enga lausn eygir maður aðra en snöruniðurskurðinn þegar fólk fer að fá nóg eftir nokkurra vikna verkföll með vorinu. 

Það vill enginn horfast í augu við það að mánaðar verkfall næst aldrei inn aftur þegar verðbólgan hefur étið upp tuga prósenta pappírshækkun kauptaxtanna. Innst inni vita allir að 0 % kauphækkun núna og sáttakauplækkun þeirra sem fengu Kjararáðshækkanirnar myndi skila meiri kjarabótum til allra innan skamms tíma heldur en allar aðrar tillögur sem nú eru uppi. En um slíkt er auðvitað ekki hægt að ræða.

Því hafa drögin verið lögð að efnahagslegu sjálfsmorði þjóðarinnar innan tveggja mánaða.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922