Svo segir á Mogga:
"Nú hillir undir langþráðar vegabætur í Bláskógabyggð því á þessu ári verður byrjað að leggja bundið slitlag á Reykjaveg (355), milli Laugarvatnsvegar og Biskupstungnabrautar.
Bæði heimamenn og sumarhúsaeigendur á svæðinu hafa kvartað undan ástandi vegarins um árabil .enda er þetta í dag malarvegur með slæmri hæðar- og planlegu og einbreiðri brú, að sögn Svans G. Bjarnasonar, svæðisstjóra Vegagerðarinnar á Suðurlandi. Í umfjöllun um þessar samgöngubætur í Morgunblaðinu í dag segir Svanur að þessi vegur hafi verið þungur í þjónustu hjá Vegagerðinni.
Tilboð voru opnuð hjá Vegagerðinni 8. janúar sl. í breikkun og endurgerð Reykjavegar (355) í Bláskógabyggð ásamt byggingu nýrrar 20 metra langrar eftirspenntrar brúar yfir Fullsæl. Brúin verður tvíbreið. Lengd kaflans auk tengivega er 8 kílómetrar. Innifalið í verkinu er einnig efnisvinnsla í námum, ræsalögn, girðingarvinna og útlögn klæðingar. Hún verður tvöföld, alls 68 þúsund fermetrar."
Hvað með veginn frá Flúðavegi upp að Gullfossvegi meðfram Tungufljóti fram hjá Króki, Borgarholti, Bergstöðum, Drumboddsstöðum, Einholti, Kjarnholti og Gýgjarhóli (358?)? Síaukin rútuumferð sér íbúum fyrir stanslausum rykmekki allt árið? Okkur hefur aðeins verið tjáð að þetta verði ekki á dagskrá næsta áratug eða meira. Hverjar eru umferðartölurnar á þessum tveimur vegum. Er það víst að hún sé meiri á Reykjavegi en þarna? Hvað stjórnar valinu þegar bundið slitlag er lagt á Reykjaveg?