er á grafi frá 2017 frá G.Tómasi Gunnarssyni.
Ég vona að hægt sé að lesa á þetta graf frá Eurostat sem sýnir að verðlag á Íslandi á vörum öðrum en áfengi er hæst á Íslandi. Ef maður smellir á myndina stækkast hún í læsilega stærð.
Verði kjarasamningar á þeim nótum að gengi hækki myndi þá verðlag breytast niður á við? Eða hækka?2017 var dalurinn á 116 en er nú 117 til samanburðar. En kaup hefur hækkað verulega . Evran var þá 122 en er nú 137. Hvaða áhrif hefur þetta?
Takið eftir því hvílík Paradís Pólland er fyrir Íslendinga að ferðast til. Verðlagið þar er meira en helmingi lægra en hér. Og verðið á áfengi þar er okkar verð deilt með PÍ! Og tannlæknaþjónusta og rakaraþjónusta líka!
Við eru í EES sem ráðamenn margir lofa. Sem á að þýða að aðgengi að mörkuðum í Evrópu á að vera alveg sérstakt. Samt er þetta nú svona.
Hversvegna er Íslandsverðlagið svona sérstakt?