á vegum ríkisstjórnarinnar sem komið er:
"„ Frítekjumark ellilífeyrisþega vegna atvinnutekna hækkað úr 25.000 krónum í 100.000. Eitt fyrsta verk stjórnarinnar.
„ Hámarksgreiðslur í fæðingarorlofi hækkaðar úr 520.000 í 600.000 þann 1. janúar sl.
„ Engin komugjöld verða innheimt af öryrkjum og öldruðum í heilsugæslu og hjá heimilislæknum frá 1. janúar 2019. Gjaldtöku fyrir vitjanir lækna til aldraðra og öryrkja hætt.
„ Stofnstyrkir til byggingar félagslegs leiguhúsnæðis hækka um 800 milljónir á þessu ári og eftir það er gert ráð fyrir stofnstyrkjum til bygginga allt að 300 félagslegra leiguíbúða árlega.
„ Aukin fjárframlög til umhverfismála um 35% frá því að ríkisstjórnin tók við í fjárlögum 2018 og fjármálaáætlun 2019-2023.
„ Verulega aukin fjárframlög til reksturs og fjárfestinga í heilbrigðismálum, eða um 11% milli fjárlaga 2017 og 2018 og um önnur 19% á tímabili fjármálaáætlunar.
„ Uppbygging innviða á ferðamannastöðum með áherslu á friðlýst svæði. Í heildina verður 2,1 milljarði varið í hana á næstu þremur árum.
„ Hækkað kolefnisgjald um 50% og boðuð frekari hækkun um 20% á næstu árum.
„ Atvinnuleysisbætur hafa hækkað í 90% af dagvinnutryggingu, úr 227.417 kr. í 270.000 kr. á mánuði.
„ Fjármagnstekjuskattur hækkaður úr 20 í 22%. Stefnt að frekari hækkun.
„ Breyttar úthlutunarreglur LÍN. Flóttafólk hefur nú aðgang að framfærslulánum í fyrsta sinn.
„ Verulega aukið fjármagn til samgöngumála, bæði í fjárlögum yfirstandandi árs og í fjármálaáætlun. Fjárfest verður í uppbyggingu samgönguinnviða fyrir 124 milljarða á tímabili áætlunarinnar.
„ Stórátak boðað í uppbyggingu hjúkrunarrýma. Rýmum verður fjölgað um 550 á næstu árum og aðbúnað
"Hækkun á bensíngjaldi.
"Veruleg aukning ríkisútgjalda munu verða með stórauknu aðstreymi flóttamanna og hælisleitenda eftir aðildina að Marrakesh samningi S.Þ.
"Persónuvernd Ríkisins mun fá verulega aukið fjármagn tl starfsemi sinnar.
"Stórhækkun mun verða á launum opinberra starfsmanna vegna kjarasamninga.
Hér er myndarlega að verki staðið og skattheimta bæði aukin og boðuð.
Sem kunnugt er þá á Sjálfstæðisflokkurinn aðild að þessari ríkisstjórn sem hefur gert þetta myndarlega átak í ríkisútgjöldum.