Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Hvenær byrjar ballið?

$
0
0

Sem Sólveig Anna býður upp á?

Hún skrifar svo á Miðjuna undir ritstjórn mannvinarins Gunnars Smára Egilssonar:

"Efnahagskerfi sem getur ekki séð vinnuaflinu fyrir mannsæmandi húsnæði á viðráðanlegu verði er efnahagskerfi sem glímir við verulega alvarleg vandamál. Til þess að vinnuaflið geti endurnýjað sig á milli þess sem það er ekki í vinnunni þarf það hvíld, mat og húsnæði.

Sjúkur fókusinn sem ríkt hefur hér á hagsmuni og aðstæður kapítalista ofar öllu og algjörlega á kostnað þeirra sem er gert að lifa neðar í stigveldinu, sjúkur fókusinn sem stjórnmálin hafa átt mikinn og ríkan þátt í að magna í sífellu, hefur gert það að verkum að enginn fókus hefur verið settur á lífskjör vinnuaflsins og svo auðvitað þeirra sem geta af einhverjum ástæðum ekki unnið.

Aðstæður fólks sem tilheyrir þessum hluta af samfélaginu hafa bara ekki vakið neinn áhuga og ekki vakið neinn af þeim glæpsamlega Þyrnirósarsvefni (fyrirgefðu Þyrnirós) sem stjórnmálin hafa sofið árum saman. ...

...Sá mikli antagónismi sem ríkir á milli þeirra sem hér eiga auð og eignir og þeirra sem vinna en eignast samt aldrei neitt er raunverulegur. Hann er ekki hugarsmíði mín eða félaga minna í baráttunni. Hann er djúpur og fer dýpkandi vegna þess að ekkert er gert til þess að draga úr honum af þeim sem raunverulega gætu það. Þvert á móti; það er bókstaflega allt gert til þess að hann verði sem mestur."

Stefnir hún í verkföll fyrir þa sem ekki kusu hana og þá hvenær? Er hægt að rökræða   " Benjamínskt" við hana um efnahagsstærðir? 

Hvernig væri að SA velti fyrir sér tímasetningum á því hvenær ballið eigi að hefjast?


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922