hjá Gunnari Rögnvaldssyni sem sendir mér þetta tilskrif:
" Ég vona að Vegagerðin komist brátt í gegnum það þarfa verk að búa svo um hnútana að enginn þurfi að koma til né hafa viðkomu í Reykjavík Austur-Berlínarklíku vinstrimanna, nema í neyðartilvikum.
Að vegur verði lagður fram hjá þessu svartholi svo að enginn þurfi að koma í þessa viðurstyggð sósíalismans að óþörfu. Að Íslendingar komist til dæmis til Keflavíkurflugvallar án þess að þurfa að koma inn á þetta útópíska geggjunarsvæði.
Eiginlega vona ég að það haldi áfram að sökkva, því landið þolir ekki meira af DDR-sósíalisma sjúkdómum Reykjavíkur. Borgin liggur eins og rotnandi DDR-hvalur á Íslandi. Fnykurinn er þvílíkur.
Þessi staður, Halldór, er búinn að vera fyrir full og allt. Vinstrimennska eyðilagði hann og fólkið grætur. Það er ekki hægt að bjarga stórum hluta Reykjavíkur lengur. Eyðileggingin er orðin of mikil. Það yrði of dýrt. Burt með hana. Og burt með stofnanir lýðveldisins af þessu geggjunarsvæði sósíalismans.
Eftir næstu 15-20 ár verða um 70-100 þúsund manns búandi í Árborg og á Suðurnesjum til samans. Í dag búa þar um það bil 40 þúsund manns.
Stór hluti þessa fólks mun hafa flúið frá sveitafélagi sósíalismans í Reykjavík. Góður og hraðfarinn vegur mun liggja frá Árborg til KEF og út á land og þessi 90 þúsundir manna munu aldrei koma til Reykjavíkur.
Hafnir verða horfnar frá Reykjavík og Grundartangahöfnin verður stærsta höfn Faxaflóahafna. Sjúkrahús í mýri verður sokkið í þrot og miðbær Reykjavíkur verður álíka aðlaðandi og bærinn Tjernobyl er fyrir ungt fólk með börn í dag.
Í stað þeirra sem fóru verður svo kominn erlendur lýður á úlföldum, túrbanhausaðar karrýslettur upp um turnspíruveggi og gargandi gjallarhorn jihadista hamast á framfærslu skattgreiðenda.
Harpan mun þá hafa umturnast í hæli fyrir sanna öreiga og enginn læknir með fullu viti vill búa nálægt þessu gjaldþroti. Hellisheiðin er þá þegar mosavaxin á ný og reiðbraut komin þar sem vegur er núna.
Drekkingarhylur verður kominn í Tjörnina við Ránshúsið, og endur horfnar henni af sökum viðbjóðs.
Enginn flugeldur mun sjást nokkru sinni og jólatré bönnuð. Hallgrímskirkjan eins og hún hét, verður ekki kirkja lengur, sökum mónótón fjölþjóðlegrar fjölbreytni sem alls staðar er eins.
Borgarlínan er notuð til að hengja skattgreiðendur upp í eins og í Sádí, til þess var hún byggð. Bæjarins bestu verða þeir sem eru verstir.
Austurbæjarskólinn verður eini skólinn og kennir tvo fjölþjóðlega bókstafstrúarsafi á tuttugu tungumálum. Það eina sem verður óbreytt er heiðnikirkjuhöll hásólans, sem kennir meiri mosavaxinn sósíalisma. "
Ja, það geta fleiri en Voltaire gripið pennann í pólitískum öngum sínum í Birtingi.
Það er auðvitað einhver broddur að baki svona skrifum. En það þarf andlegan léttleika til að geta farið svona með vanmáttugar hugsanir sínar. Það getur hann Gunnar Rögnvaldsson svo um munar því húmorinn hans er í lagi.