Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Reykjavíkurrevían

$
0
0

heldur áfram fyrir fullu húsi.

Félagsbústaðir fóru aðeins tífalt fram úr áætlun eða þrjúpí sinnum  sem er kannski frekar hátt miðað við pí-lögmál mitt um opinberar framkvæmdir stjórnmálamanna. Gröndalshús og Mathöllin eru í góðu samræmi við lögmálið og fóru aðeins pí-sinnum framúr áætlun eins og Bragginn. Sem er auðvitað algerlega normalt og í samræmi við margsannað pí-lögmálið mitt um opinberar pólitískar framkvæmdir.

Dagur vissi auðvitað ekkert af neinu sjálfur en lætur skoða málið og skipar starfshópa í málin. Hann kemst vel frá öllum yfirheyrslum vinveittra fréttaspyrla á RÚV  og brillérar í trúverðugheitum enda svo obboðslega sætur. Kannski kemur hann til greina við veitingu Silfurlampans næsta ár?

Frábær meirihluti hans í Borgarstjórn vakir yfir Borgarsjóði en auðvitað getur er enginn verið beinlínis ábyrgur fyrir  ófyrirséðum kostnaðaraukum  nema kannski Hrólfur sem er því sendur í frí frá áætlanagerðinni.

Skuldirnar vaxa því aðeins eðlilega um milljarð á mánuði síðustu 42 mánuði enda verða menn að skilja að rekstur félagshyggjukontóranna og starfsumhverfi og uppihald píratanna kostar auðvitað sitt.

Nú horfir allt til betri vegar með Braggann þar sem Háskólinn í Reykjavík ætlar að leigja hann á hundraðþúsund kall á mánuði sem aldeilis munar um að fá upp í vextina.

Þetta er auðvitað bráðfyndið allt saman í Reykjavíkurrevíunni hans Dags og mikill snillingur er hann í útskýringum sem allir nema hann Eyþór greyið skilja.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922