eru þeir orðnir sem ekki ferðast með einkabílnum. Þeir soga til sín skattfé í engu hlutfalli við hagsmuni fjöldans sem verður að greiða fyrir það sem hann vill ekki.
Allt fyrir draumóra sérvitringa sem hafa náð völdum fyrir tilviljunarkennda pólitíska niðurstöðu sem fjölgun Borgarfulltrúa færði kjósendum.
Einkabílafólkið verður að líða fyrir framkvæmdaleysið í gatnagerðinni fyrir einhverjar sýnir draumóramanna sem mynda bræðingsmeirihlutann í Borgarstjórn Reykjavíkur. Það verður að þjást í töfum, mengun og kostnaði þar sem draumórafólkið reynir að valda því sem mestu skaða.
Svo segir í Staksteinum Morgunblaðsins:
"Ívar Pálsson viðskiptafræðingur skrifar á blog.is:
„Áherslur borgarstjórnarmeirihlutans í umferðarmálum Reykjavíkur skila sér í þremur dögum á ári í umferðartöfum. Milljarði króna á ári heldur áfram að vera sóað í að reyna að fá strætó-elítuhópinn sem fer 4% ferðanna, til þess að stækka, en það gerist ekki. Fyrst árangur af því er enginn, þá er bætt um betur og tugir milljarða króna settir í Borgarlínu, sem mun auka tafirnar enn frekar.
Bílafloti Reykvíkinga stækkaði ört og fólk mun ekki skilja nýja bílinn eftir heima næstu árin, hvort sem hann er drifinn áfram af rafmagni eða af öðru. Framlag til vegabóta og aukins umferðarflæðis er skammarlegt á sama tíma, auk þess sem áhersla Dags borgarstjóra er enn á það að hægja á umferð (með frábærum árangri), ekki að hámarka flæði, sem t.d. tölvukerfin geta gert.
Djöfullinn finnst alltaf í smáatriðunum og nú er að koma í ljós hvernig Borgarlínan er: stærðar svæði tekið undir strætó, hjól og gangstíga, en ein akrein fyrir bíla, sem fara 70-80% ferðanna.“
Við þetta bætist að þeir sem verða svo óheppnir að búa nálægt Borgarlínunni svokölluðu fá að greiða hærri skatta; sérstaka innviðaskatta. Breytir engu í því sambandi hvort þeir nota áfram eigin bíla, sem er líklegast, eða taka allt í einu upp á því að ferðast um með strætó á sterum. "
Það er eitt hversu hlægilegt það er að menn í stætóelítunni skuli ekki opna augun fyrir því sem er að gerast í nærumhverfinu. Annað er hversu framtíðarþróunin skaðast á töfunum sem þetta fólk er að valda í nútímanum.
Allstaðar eru byggð mislæg gatnamót og akreinum fjölgað eftir því sem kostur er. En Dagur B. Eggertsson segir þeirra tíma vera liðinn í Reykjavík.
Menn reyni að sjá gatnamótin sem eru á Reykjanesbraut við Garðabæ fyrir sér vera komin á Kringlumýrarbraut og Miklubraut og göngubrúna á Breiðaholtsbraut vera komna í stað gangbrautarljósanna á Miklubrautinni? Hvað myndi ekki breytast?
Það verða dýrkeypt mistök að verða að þola Dag sem Borgarstjóra afturhaldsins núlíðandi kjörtímabil og er ábyrgð Viðreisnar og Pírata mikil í þeim efnum. En fylgi slíkra skoðanalítilla flokka kaupa valdabraskarar allsstaðar auðveldlega fyrir skattfé.
Kostnaðurinn og öfugþróunin munu fylgja Borginni til margra ára sem tekur að vinda ofan af draumsýnum Hjálmars og Dags þegar fólkið hefur greitt atkvæði í næstu kosningum.
"Gangandi og hjólandi" er ekki umferð heldur lífsstíll og aðeins 4 % fólks velur sér að keyra í Strætó eða Borgarlínu. Yfirgnæfandi meirihluti kjósenda hluti sem vill komast leiðar sinnar sem greiðast í einkabílnum, er það sem felst í hugtakinu umferð. Þeir ættu auðvitað ekki að vera minnihlutahópur sem líður fyrir forréttindi yfirgnæfandi minnihluta draumóraelítunnar.