Hver kemur þar til greina? Einhver með tengsl við slík mál áður?
Hann var ekkert að tvínóna við tilgátuna. "Marvin" var nafnið, sem uppljóstrarinn gaf sjálfum sér. Þetta væri augljóslega samsett nafn. Viðkomandi hefði gefið sig út fyrir að vera vinur þjóðarinnar. Þaðan væri kominn seinni hluti nafnsins, en fyrri hlutinn úr raunverulegu skírnarnafni hans. Bjartmar Þeyr Alexandersson væri þetta. Hann hefur einmitt tengsl við þá, sem reyna að koma upp um hluti og birta þá almenningi. Hann er úr flokki Pírata, sem m.a. í gegnum persónu Birgittu hefðu starfað með Wikileaks og teldu slíka birtingu "mikilvægra upplýsinga fyrir þjóðina" réttlætanlega.
Menn benda oft á sjálfa sig með því, sem átti að vera dulnefni þeirra. Bjartmar þessi (svo að ég tali hér og geri það þá af reynslu) reyndi m.a. að taka upp öll ræðuhöld á 100 manna fundi Íslensku þjóðfylkingarinnar á Hótel Esju (sem hét þá reyndar ekki lengur því gamla nafni). Ágengni hans var mikil, en það tókst að vísa honum frá. Hann virðist stunda s.k. rannsóknarblaðamennsku af slíku pólitísku tagi á DV, en hefur hins vegar látið af því að hringja í Útvarp Sögu, líklega af því að hann er þá upptekinn af vinnu sinni og kannski til að minna beri á flokkspólitísku upplagi blaðamannsins.
En Píratar eru anarkistar, stjórnleysingjar, og því ekki mikil von til þess að þeir fari að reglum samfélagsins um persónuvernd.
Athafnaleysi hinnar opinberu stofnunar Persónuverndar í þessu ólögmæta birtingarmál er hins vegar kapítuli út af fyrir sig. Telur hún allt í einu enga ástæðu til að halda uppi persónuvernd manna? En ég hef (í Útvarpi Sögu f.h. 6. des.) skorað á þá stofnun að beita lögbanni gegn birtingu slíks efnis, enda er viðbúið, að ella verði birt meira af uppteknu efni af barnum Klaustri. Beita ber háum sektum gegn lögbrotum af þessu tagi.
Ég tek það fram, að ég lít á ábendingu vinar míns, sem var mjög sannfærður um þetta, sem einbera tilgátu. En ég hef vissulega séð ósennilegri tilgátur um ævina en þessa. Varð einhver var við Bjartmar þennan umrætt kvöld?"
Þurfa þolendur ekki að athuga sína stöðu eða eru þeir réttlausir með öllu gegn árásinni?