er til umræðu núna í Póllandi
Á síðu Vilhjálms Eyþórssonar eru þessar staðreyndir tilfærðar:
"Af þessum 400 grömmum í tonni andrúmslofts eru kannski 10 grömm manngerð, en vel hugsanlega miklu minna.Raunar mælist koldíoxíð mjög mismikið eftir landsvæðum og árstíðum og tímum sólarhrings, eykst á nóttinni, minnkar á daginn.
Koldíoxíð kemur að sjálfsögðu að hluta frá andardrætti manna, dýra, fugla, fiska (neðansjáar). skordýra (gífulegt magn, sem alltaf gleymist) og ekki síst kemur það frá sveppagróðri og aeróbískum (ildiskærum) bakteríum. Allt sem deyr ofansjávar og neðan breytist að miklu leyti í koldíoxíð fyrir tilverknað þessarra örvera. Menn ættu að hafa í huga að örverur eru um helmingur lífmassa jarðarog þetta magn er gífurlegt (sbr. t.d. framræsla mýra).
Þá er ótalið allt það, sem streymir af þessari ósýnilegu, lyktarlausu lofttegund upp úr jörðinni allan sólarhringinn alla daga úr öllßum lág- og háhitasvæðum jarðar ofansjávar og neðan auk þess sem eldfjöllin leggja öðru hvoru til. Jafnvel í ýmsum jarðfræðilega „köldum" löndum eru víða ölkeldur, sem koldíoxíð streymir upp um.
Þetta er óskaplegt magn, en eldvirkir neðansjávarhryggir ná um 50 þús. kílómetra í mörgum hlykkjum umhveris jörðina og á þeim eru hunduð þúsunda eða milljónir loftventla og eldgíga.
Allar jurtir, ofansjávar og neðan eru að miklu leyti úr kolefni, oft 30-50% og bókstaflega allt þetta kolefni kemur úr koldíoxíði. Menn og dýr eru líka að miklu leyti úr kolrfni, sem upphaflega hefur komið úr koldíoxíði gufuhvolfsins.
Jurtirnar þurfa gífurlegt magn koldíoxíðs á hverjum degi til að vaxa og dafna, mynda nýjar frumur og vefi og nýtt súrefni, en allt súrefni gufuhvolfsins hefur áður verið koldíoxíð (annar helmingur mólekúlsins).Þessi hringrás tekur aðeins innan við tíu ár.
Raunar byggir C 14 aldursgreining fornleifafræðinga á þeirri staðreynd, að þetta er hringrás sem sífellt endurnýjast, koldíoxíð eyðist og nýtt tekur við á um tíu ára fresti og þannig hefur þetta verið í milljarða ára, síðan jörðin var ung.
Í samanburði við þessa risavöxnu hringrás sem nær til allra jurta og þörunga í öllum löndum og höfum verður brölt mannanna heldur lítilfjörlegt og beinlínis hjákátlegt.
Á þessari mynd má sjá, að koldíoxíð, þessi 0,038% gufuhvolfsins, er talið valda í mesta lagi 3,6% gróðurhusaáhrifa.Hluti mannkynsins í þessum 3,6% er reyndar svo lítill að hann mælist varla, en um það stendur öll deilan.
Gróðurhúsaáhrif koma að langmestu leyti frá vatnsgufu (myndina má stækka með því að smella á hana).
