því sem Ólafur Arnarson skrifaði 15.nóvember 2011 á Pressunni um þátt þáverandi fjármálaráðherra Steingríms J. Sigfússonar um innheimtur skulda íslenskra heimila eftir hrun.
Þá voru einnig völdum skuldakóngum gefnar upp sakir samkvæmt sérstökum dauðalista stjórnvalda sem voru Norræna Velferðarstjórnin þeirra Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar. Sú stjórn átti það eina hreina stefnumál eftir að troða Íslandi í ESB með illu fremur en góðu.En sú stjórn var látin lifa sjálfa sig átölulaust og umboðslaus í hálft kjörtímabil án þess að tunnur væru barðar og eldar kveiktir.
Ólafur skrifar m.a. svo:
"Þetta vekur stórar spurningar. Hvenær vissi FME að vogunarsjóðir ættu miklu meira en helming krafna í gömlu bankana? Alþjóðlegir fjármálamarkaðir hafa vitað þetta frá því á árinu 2009 og ég benti á það í pistli í maí 2009 að upphaflegir lánveitendur íslensku bankanna væru búnir að selja skuldabréfin í þeim á hrakvirði en fjármálaráðherra seldi ekki bankana í hendur kröfuhafa fyrr en árið 2010, með samþykki FME. En hvenær vissu fjármálaráðherra og forstjóri FME af þessu? Vissu þeir kannski aldrei neitt í sinn haus?
Fjármálaráðherra og forstjóri FME skulda skýringar á því hvers vegna þeir færðu hrægammasjóðum íslenska bankakerfið á silfurfati. Ráðherrann hafði enga lagaheimild til að selja hlut ríkisins í nýju bönkunum og FME virðist hafa gefið blessun sína þrátt fyrir það og þrátt fyrir að kaupendurnir væru alræmdustu spákaupmenn samtímans – þeir hinir sömu og áður höfðu hagnast á því að taka stöðu gegn Íslandi á afleiðumörkuðum í aðdraganda hruns.
Íslenska þjóðin hlýtur að geta krafist skýringa á því hvers vegna fjármálaráðherra seldi vogunarsjóðum bankana og skotleyfi á skuldara án lagaheimildar og komst upp með það. Myndum við ekki krefjast rannsóknar ef yfirvöld gerðu samning við dæmda barnaníðinga um dagvistun barna?"
Þetta er sami fjármálaráðherrann og ætlaði að leggja Icesave á herðar íslenskra skattgreiðenda með Svavars(Gestssonar)samningunum "glæsilegu". Þeir samningar hefðu þýtt að 280 milljarðar hefðu verið á gjalddaga núna sem vextir af skuldinni sem væri öll eftir ógreidd.
Þessi maður var formaður Vinstri Hreyfingarinnar,-Græns Framboðs, skammstafað VG. Hann setti svo Katrínu Júlíusdóttur fyrir sig af klókindum til að hafa fallegri framhlið út á við þar sem hann hafði sjálfur hlotið nokkuð blendið rygti eftir sínar lækningatilraunir efnahagsmeina.
Enginn velktist þá í vafa hver þó réði mestu um för VG frá fámennum leiktjaldasýningum félagsins, hver legði öll ráð, hver hefði hin raunverulegu völd. Þetta virkaði svo vel að sakleysingjar íslenskir í skoðanakönnunum hafa mest traust á Katrínu þessari Júlíusardóttur til allra stjórnmálastarfa. Það virðist engar spurningar hvarfla að þeim hvort hún sé hinn engifríði holdgervingur traustsins eða aðeins strengjabrúða hins reynda stjórnmálarefs sem hefur setið 33 ár á Alþingi?
Svo blessaði Guð Ísland eftir hrunið og fyrirsjáanleg svik Samfylkingarinnar sem allir núverandi forystumenn þess félags stóðu að, að þessi kaleikur var frá íslenskri þjóð tekinn. Í heimi fjölmiðlanna var Samfylkingin ekki einu sinni í hrunstjórninni heldur bara Geir H. Haarde og Sjálfstæðisflokkurinn einn og óstuddur.
Almenningur er hinsvegar aldrei minntur á það að þessi stjórn bjargaði þjóðinni með neyðarlögunum svo langt sem hún náði áður en hún var barin út með trumbuslætti og brennum Austurvallarindíánanna.Heljartök þessa liðs á meirihluta fjölmiðlunar landsmanna hræra samt steypuna allar götur síðan með rangupplýsingum, rógi og hálflygum, svo að stór hluti hennar trúir því að tunnubarsmíðar fárra þúsunda eigi að ráða stjórnsýslu lýðveldisins.
Frá dögum Brunos virðist alltaf hægt að finna heilaga einfeldninga til að leggja sprek í bálkesti feigðarinnar. Það er það verkefni sem Steingrímur heldur að sínu sporgöngufólki með stuðningi meirihluta fjölmiðlanna, því hvenær sem upp kemur álitamál er hann eða Katrín spurð fyrst um álit.
Það væri óskandi að einhverjir myndu ekki gleyma sögunni þegar Austurvallarsöfnuðurinn er búinn að berja styttingu kjörtímabilsins og núverandi hagvaxtartímabils inn í stjórnskipunina. Búið að ná fram skaða á efnahag þjóðarinnar og lífskjörum með því að koma henni hálfu ári fyrr í hendur fákunnáttu og draumlyndis. Andri Snær Magnason, Hallgrímur Helgason,Birgitta Jónsdóttir, Katrín Júlíusdóttir og Árni Páll Árnason skipa framvarðasveit hins nýja Íslands. Ráðgjafarnir verða Steingrímur J. Sigfússon, Magnús Orri Schram og Helgi Hrafn Gunnlaugsson.
"Íslands ógæfu verður allt að vopni" sagði maðurinn. Það væri æskilegt að þið kjósendur gleymið samt ekki öllu strax og hoppið í kanálinn þó að ykkur sé daglega sagt að gera það af RÚV, Fréttablaðinu, Stöð2 og 101 liðinu.