heldur áfram í tuddaskap íslenskra ráðamanna.
Guðni Ágústsson gerir þessu góð skil í Mbl. í dag. Hann segir m.a.:
"...Enginn Íslendingur gleymir heldur þeim drengskap sem Rússar sýndu okkur í bankahruninu, við stóðum einir með hryðjuverkalög Bretana á herðunum, allt að lokast hér, en þá réttu þeir vinarhönd og buðust til að hjálpa ásamt örfáum öðrum þjóðum.
Síðar kom að ögurstund hjá Rússunum 2015 þegar ESB taldi mikilvægt að beita þá viðskiptabanni og við hlýddum frumhlaupi utanríkisráðherrans, Gunnars Braga Sveinssonar, að vera með þeim stóru í stríðinu. Það gerðu Færeyingar ekki og reyndar ekki heldur mörg lönd í ESB.
Það er fullyrt að andsvar Rússa, sem beit okkur fastast, hafi nánast þá kostað okkur öll viðskipti við Rússa, milljarða á milljarða ofan, en fórnin var leikrit hjá sumum ESB-þjóðunum og viðskiptatapið hvergi jafn hlutfallslega stórt og hér á landi. Og svo kom kórónan þegar utanríkisráðherrann, Guðlaugur Þór Þórðarson vinur minn, sá ástæðu til að banna forseta Íslands, sjálfum sér og menntamálaráðherra að sækja HM í Rússlandi og berjast með strákunum okkar á stærstu stund Íslenskrar knattspyrnu. Hinar Evrópuþjóðirnar sumar þekktu ekki þetta bann og sendu sína höfðingja til leikanna þegar að þeirra liði kom og Pútín sjálfur sat við hlið sumra þeirra eins og sönn íþróttahetja og klappaði fyrir báðum liðum.
Sjálfum þótti mér það merkilegt vináttubragð Rússanna að á sama tíma var ýtt úr vör framleiðslu á Ísey skyri í Garðaríki með samningi við MS. Þar var ég og varð vitni af vinskap Rússanna en þeir sendu skyrið bæði til okkar og sinna manna og stóðu með strákunum okkar, það staðfestir magnað myndband sem þeir gerðu í þakklætisskyni.
Oft er gott sem gamlir og reyndir kveða, Kristinn Guðmundsson fv. utanríkisráðherra og sendiherra í Moskvu, gaf Rússum þessa lyndiseinkunn: „Rússar eru trygglynt fólk og sómakært, betri og traustari starfsmenn er vart hægt að hafa í þjónustu sinni.“
Þetta skynja ég hjá mörgum Íslendingum sem vinna og hafa unnið í Rússlandi. Það er uppgangur hjá Pútín forseta í Rússlandi. Þess vegna eigum við að nota afmælisárið til að efla vinskap og samskipti okkar á ný við Rússana og endurskoða viðskiptabannið. Þar með eflum við frelsi okkar sjálfra eins og sagan sannar eftir 75 ára stjórnmálasamband landanna."
Fyrir mér er áframhald heimskunnar sem taglhnýtingar ESB óskiljanleg.