sem menn kunnu í gamla daga?
Af hverju er þessi síbylja um ofsóknir, ofveldi og ruddaskap allstaðar?
Svo segir í Mogga:
"Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra segir að launakannanir séu of takmarkaðar í eðli sínu til að slá nokkru föstu um kynbundið misrétti er kemur að launum. Hún segir að þær ályktanir sem dregnar eru af tölum Hagstofunnar um meðalatvinnutekjur karla og kvenna á vef Kvennafrídagsins séu beinlínis rangar.
Þetta segir Sigríður á Facebook-síðu sinni og bendir einnig á að ungar konur á aldrinum 18-27 ára sem starfi hjá hinu opinbera, fái hærri laun en karlar á sama aldri. Þær mæti því „væntanlega aðeins fyrr til vinnu í fyrramálið“.
Á vef Kvennafrídagsins kemur fram að þar sem meðalatvinnutekjur kvenna nái einungis 74% af meðalatvinnutekjum karla, fái konur 26% minna greitt að meðaltali en karlar fyrir störf sín. Af þeirri ástæðu gengu konur um allt land frá vinnu sinni kl. 14:55 í dag, þegar 74% vinnudagsins voru að baki."
Af hverju er þjóðin orðin svona illa uppalin að hún geti ekki hegðað sér af kurteisi gagnvart konum sem öðrum?
Ekki man ég til þess að strákar sem voru með manni í skólanum hafi hegðað sér ruddalega gagnvart stelpunum.Þetta var bara innbyggt í alla að hegða sér vel. Slagsmál milli stráka voru frekar sjaldgæf en ofbeldi gegn stelpum þekktist ekki.
Af hverju er allt þjóðfélagið orðið svona upptekið af kynbundnu ofbeldi, misrétti og dellu að það er ekki þverfótað? Hvar er gamla séntilmennskan? Af hverju lögðum við af þéringar einir þjóða? Niðuráviðsnobberí kallaði Einar Magg þetta.
Hvar týndist kurteisin?