Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Röksemdafærsla Vilhjálms

$
0
0

fyrir almennum launahækkunum er ekki flókin:

" Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness er kominn með aðgang að vefnum tekjur.is. Vefurinn er umdeildur og telja margir það óviðeigandi að hægt sé að fletta upp tekjum einstaklinga.

Vilhjálmur ákvað að fletta upp forstjóra hjá stóru fyrirtæki í ferðaþjónustunni: „Á vefnum tekjur.is kemur fram að forstjóri í stóru og öflugu fyrirtæki innan ferðaþjónustunnar hafi verið með rétt tæpar 12 milljónir í mánaðarlaun árið 2016 en það var ekki allt, því viðkomandi forstjóri var líka með fjármagnstekjur uppá 157 milljónir á ári eða nánar tilgetið 13,1 milljón á mánuði,“ segir Vilhjálmur, en hann nefnir forstjórann ekki á nafn.

„Heildartekjur þessa forstjóra voru því rétt tæpar 25 milljónir á mánuði eða 298 milljónir á ári og rétt að geta þess að þetta eru 83-föld lágmarkslaun!

Ætlar einhver að halda því fram að ekkert svigrúm til launahækkana sé til staðar hjá fyrirtækinu sem þessi forstjóri starfar hjá?“

Er ekki nokkuð ljóst að þetta er hugsað sem réttlæting fyrir launahækkun yfir línuna? Þetta dæmi yfirfærist á alla launþega jafnt.

Pirringurinn yfir því hvernig æðstu stjórnendur ríkisins notuðu Kjararáðsúrskurðinn sér til ábata og neita að skila nokkru til baka í ljósi ástæðna gera ástandið í kjarasamningunum óleysanlegt. Það er öfundin og samanburðurinn sem er drifkrafturinn. Fólkið myndi hugsanlega sætta sig við 4 % ef þeir stóru myndu sætta sig við að skila einhverju til baka.

Allt umfram 4 % yfir línuna vita flestir hvar muni enda. Stytting vinnuvikunnar er bara taxtahækkun um sama hundraðshluta. Það er búið að reyna það og árangurinn frá 1971 liggur fyrir. Allt tal um önnur áhrif er út í loftið.

 

Útá það gengur röksemdafærsla Vilhjálms og hinna forkólfa "verkalýðsins", aldraðra og öryrkja.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922