Hvað er það eiginlega?
Mér skilst að vinstrimenn hafi einkarétt á lögsóknum gegn einhverskonar ummælum frá hægrimönnum í garð þeirra. Lögreglan hafi sérstaka deild til að stefna slíkum dónum og fá þá dæmda.
Nú hefur þetta snúist við að því að Jón Steinar Gunnlaugsson upplýsir. Hann tilfærir nokkur ummæli siðprúðra kvenna um sig á svæði sem Sóley Tómasdóttir, landsþekkt hófsemdarkona af siðprýðisarmi stjórnmálanna.
Þær segja m.a.:
Illfygliskarlagerpi
Á svæðinu sá ég meðal annars eftirfarandi ummæli um mig:
Maggý Helga Jóhannsdóttir Möller: „Megi hann fokka sér. Viðbjóður.“
Heiða Hrönn Sigmundsdóttir: „Hvílíkt ógeð sem þetta kvikindi er.“
Kristín Krantz: „Jón Steinar getur hoppað upp í rass.“
Undir þetta tóku Margrét Ágústsdóttir: „og tekið hina kallana með sér, hann kæmi nokkrum fyrir þar með sér“ og einnig Nína Vigdísardóttir Björnsdóttir.
„Örugglega enda búinn að vera með hausinn þar svo árum skiptir.“
Þórlaug Borg Ágústsdóttir: „Mig minnti að þessi gaur væri fáviti. Það er alveg rétt munað.“
Steinunn Þorgerðar Friðriksdóttir: „Hver önnur ætlar að skála í kampavíni þegar þetta illfygliskarlagerpi hrekkur upp af, meina Jón Steinar.“
Og enn bæta þær í og nú með tilstyrk veikara kynsins:
"
Guðlaug María Pálsdóttir sagði þetta vera „ofbeldismannalegt“ og síðar að þetta væri „mjög basic ofbeldismanna stjórnunarhegðun“.
Hildur Ósk: „Ojjj. Þetta er óhugnanleg hegðun hjá óhugnanlegum manni.“
Jóhanna Margrétardóttir: „Hann er fáv... (og örugglega með einhverjar beinagrindur inni í sínum skáp).
Viktoría Júlía Laxdal og Kristín Johansen gerðu við mig gælur sem fólust í að kalla mig „kríp“. Elín Jakobína sagði „hversu kríp“.
Jón Thoroddsen: „Jón Steinar er drullusokkur. Vona að þetta berist.“
Hildur Lilliendahl Viggósdóttir taldi mig „þurfa alvarlega að fokka“ mér. Ég hefði „ofsótt konur með símtalinu“. Og einnig: „Hann hefur ekki rassgat og þessi kúgunartaktík er svo ódýr og sorgleg.“
Allt útaf því að Jón Steinar er með mál Kristins Sigurjónssonar sem H.R. rak úr starfi.
Ekki kann ég að skilgreina hatursorðræðu og verð sjálfsagt að fá aðstoð lögreglustjóra til að útskýra hversvegna hún stefnir Kristni Sigurjónssyni væntanlega fyrir hatursorðræðu.