fór fram í dag að viðstöddu fjölmenni frammámanna í sínu fínasta pússi.
Ég er einn þeirra sem þarf að koma á Landspítala tvisvar í hverjum hálfum mánuði. Ég kem á bíl úr Vatnsenda sem tekur um hálftíma. Ef ég er óheppinn verð ég að leggja svona hálfan kílómetra frá innganginum. Ef ég er óheppinn verð ég að berjast í veðri þessa vegalengd. Ef ég er heppinn þá er þetta styttra. Nú er bílastæðum að fækka vegna framkvæmda þannig að vetrarhorfur eru ekki batnandi.
Ég spurðist fyrir um framtíðarhorfur fyrir parkeringar á lóðinni og hvort til greina kæmi að einkaaðilar fengu að reisa 1000 bíla"Robopark" byggingu til að auðvelda aðgengi og stytta gönguleiðir.Það er ekki heldur á fólk að leggja bílum einhverstaðar í bílastæðahúsi og fara þaðan í sin erindi. Meira veit ég ekki.
En það sem ég er að spá í er hvort séð verði fyrir flutningi þeirra, sem eru lélegir til gangs, frá bílastæðum inn í spítalann? Sem var hugsun mín varðandi byggingu "róbotaperkeringarinnar" í námunda við eða sambyggðri við spítalann vegna reynslunnar minnar.
Ég vona að brosið á ráðamönnum verði jafn breitt ef þeir þurfa sjálfir að ganga "Jakobsveginn" frá bílastæðunum til meðferðar þegar veður eru með íslenskasta móti.
Þá verður gaman að rifja upp gengin gleðistig og góð skóflustunguveður við Landspítala.