Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Samfylkingin talar skýrt

$
0
0

samkvæmt því sem Styrmir Gunnarsson vekur athygli á:

" Í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra á Alþingi sl. miðvikudagskvöld gaf Logi Einarsson, formaður Samfylkingar skýra og afdráttarlausa yfirlýsingu um afstöðu flokksins til ESBHann ítrekaði að Samfylkingin vildi taka upp evru og að Ísland yrði aðili að Evrópusambandinu.

Í ljósi þróunar ESB á síðustu árum og vondrar reynslu margra evruríkja af því að taka þann gjaldmiðil upp er nánast ótrúlegt að heyra slíkar yfirlýsingar nú.

En ummæli Loga voru alveg skýr.

Það er ljóst að Samfylkingin hefur ekki veitt því eftirtekt að innan ESB ríkir algert uppnám. Aðildarríkin í A-Evrópu eru í stríði við Brussel. Grikkir upplifa sig sem nýlendu annarra Evrópuríkja, og að þeir hafi verið rændir til að greiða upp tap þýzkra banka af lánum til Grikklands, á Ítalíu eru ráðamenn æfir yfir því að einn af helztu ráðamönnum ESB lýsir þeim sem "litlum mússólínum". Suður-Evrópa öll er í sárum eftir evruna.

Á Norðurlöndum, sem í augum jafnaðarmanna eru fyrirmyndarríkin, er uppgangur mjög hægri sinnaðra flokka augljós, hvort sem talað er um Sanna Finna, Danska þjóðarflokkinn eða Svíþjóðardemókrata. Ástæðan blasir við. Það er engin samstaða um innflytjendapólitík ráðandi ríkja innan ESB.

Að boða inngöngu Íslands í slíkt ríkjabandalag er fullkomið glapræði en er engu að síður yfirlýst stefna tveggja flokka, Samfylkingar og Viðreisnar.

Það þarf að herða baráttuna gegn því að gera Ísland að litlum hreppi í 500 milljón manna ríkjabandalagi. "

Og í framhaldi af þessu er ekki úr vegi að spyrja hvort boðskapur Þorgerðar Katrínar í Viðreisn sé eitthvað frábrugðinn yfirlýsingu Loga? 

Hver er raunveruleg afstaða Pírata? Væri þeim treystandi til að standa við einhver grundvallaratriði á ögurstundu?

Og svo munu einhverjir spyrja um hugsjónagrundvöll einstakra þingmanna Sjálfstæðisflokksins.

Verðu þetta munað í næstu kosningum?

Tala allir þá jafn skýrt og formaður Samfylkingarinnar talar nú? 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922