þegar forsætisráðherra boðar ríkisstyrki til annarra fjölmiðla en RÚV.
Ég koma að blaðaútgáfu fyrir Sjálfstæðisflokkinn í 17 ár.
Á flokkurinn að fá borgað?
Ég er búinn að gefa út blaðið Sámur fóstri(www.samurfostri.is)í 3 ár. Má ég sækja um? Eða bara Útvarp Saga og einar 10 aðrar einkareknar útvarpsstöðvar, N4 og Hringbraut? Eru Mogginn, DV, Fréttablaðið, Mannlíf, Vikan, og öll kjördæmablöðin gjaldgeng?
Mikið verður gaman að sjá Katrínu Jakobsdóttur úthluta af skattfé landsmanna til verðugra og synja óverðugum. Á sama hátt og gert var í hinu sæla Sovéti af leiðtoga lífs þeirra kommanna Stalín sjálfum.
Meira ríkissukk er mottó dagsins og ríkisstjórnarinnar, hvort sem eru milljarða lendingargjöld til eins aðila í Keflavík eða einhverjir smáaurastyrkir til valdra fjölmiðla.