til lífsins eftir að Alþingi samþykkti hina fáránlegu tilskipun ESB um upptöku persónuverndarlaga og stofnun stórkostlegs Ríkisskrímslis.
Þarna er er auglýst eftir hundruða milljóna auknum ríkisútgjöldum í gersamlegt tilgangsleysi sem enginn sá fyrir lagasetninguna að vantaði hér á Íslandi.
Hver var skorturinn á persónuvernd fyrir tveimur árum síðan? Hvað gagnast þessi nýja stofnun mér og þér?
Ekki býst ég við að fá mörg svör við því frá ykkur við þeim spurningu. En þið fáið að borga kostnaðinn undan blóðugum nöglunum.
Það eru bara þingmennirnir sem sitja uppi með þetta skref sem líklega verður aldrei stigið til baka fremur en útlendingalögin, Schengen eða EES. Og við sem kusum þá sitjum uppi með ábyrgðina af þeim gjörningi.
En skrímslið er að vakna og er rétt að byrja að éta okkur upp.