Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Ísland komið á kortið

$
0
0

sem alhliða ferðamannaparadís.

Blöðin greina frá aukningu í framboði vændis á Íslandi. Þetta er góð tíðindi því ekki er boðlegt að geta ekki boðið upp á það sem ferðamenn óska.

Vændi er virðingarverð atvinnugrein og ber að hlúa að. Starfsemi yfirvalda á að snúa að því að vernda þá sem það stunda frá ofsóknum glæpamanna eins og alfonsa og eiturlyfjabaróna og svo líka innlendra hneykslunarkellinga eins og hér ríða húsum. Síðast taldi hópurinn telur að engin kona gerist vændiskona nema tilneydd en frá því er auðvitað langur vegur. Mansalsupphróp þessa fólks hafa nákvæmlega engin áhrif til skilnings eða skynsemi á eðli greinarinnar.

Auðvitað er vændi hættulegur atvinnuvegur og vændiskonur þurfa að geta kallað á aðstoð ef vitfirrtir perrar skjóta upp kollinum. En það á ekki að bregðast við þessari þjónustugrein með vanhugsaðri vitleysu. Miklu heldur af skilningi og hjálpsemi.

Ísland er komið á ferðamannakortið.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922