Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Má ekki einusinni ræða það?

$
0
0

að hætta fjandskapnum við Rússa eftir þýlyndi við Evrópusambandið?

Íslensk utanríkisstefna er rekin áfram í fjandskap við Rússa þrátt fyrir eindregna andstöðu þjóðarinnar við þessa heimsku? Af hverju er ekki einu sinni hægt að ræða endurskoðun við okkar Utanríkisráðherra Guðlaug Þór?

Jón Magnússon orðar þetta svona:

" Það var ömurlegt að horfa á þau Katrínu Jakobsdóttur og Guðna Th. Jóhannesson eins og tvo niðursetninga á Hrafnseyri við Arnarfjörð, norpandi fyrir framan sjónvarpsskjá við að horfa á landsleikinn við Argentínu. Þetta þurfti Guðni Th. að þola allt vegna þeirrar fáránlegu utanríkisstefnu Íslands að troða illsakir við Rússa að fyrirskipun Evrópusambandsins. 

Þessi utanríkisstefna sem felur í sér viðskiptastríð við Rússa veldur íslensku þjóðinni milljarðatjóni árlega og miklu tekjutapi bænda og sjómanna. Afsökunin er að Rússar virði ekki mannréttindi og hafi innlimað Krímskagann skv. vilja mikils meirihluta íbúa þar. Á sama tíma semur þessi sama ríkisstjórn við Tyrki sem virða engin mannréttindi og hafa innlimað landssvæði í Sýrlandi í blóðugri styrjöld gegn íbúunum. 

Hagsmunir okkar af viðskiptum við Tyrki eru nánast engir, en miklir við Rússa. Hvaða glóruleysi er þá þessi utanríkisstefna.

Í hvers þágu starfar utanríkisþjónustan? Fyrir íslendinga eða fer hún eftir dyntum Angelu Merkel og Evrópusambandsins?"

I HVAÐA VERÖLD LIFIR ÞESSI RÍKISSTJÓRN OKKAR? 

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922