og afleidd hindurvitni og villimannlegir hættir eru einn mesti óvinur mannsandans og eru oftlega undirliggjandi orsök á flestum þeim hörmungum sem fram fara í þessum heimi. Því miður.Gyðingahatur, hryðjuverk, ærumorð,umskurn stúlkubarna og ómálga drengja eru allt þættir sem eru bein afleiðing af almennu trúarvingli.Heimskunni er lyft á stalla í nafni trúar en rökhyggja, siðprýði og kærleikur látinn fara forgörðum.
En þó blasir við að trúarbrögð eru misvond. Sjálfur styð ég hina kristna evangelísku ríkiskirkju Íslendinga samkvæmt stjórnarskránni af praktískum ástæðum án þess að jástast undir hana eða gjörninga hennar sjálfur. En mér finnst hún vera vörn almennings gegn hinni villimannlegu múhameðsku sem er óhafandi sem áhrifavald meðal siðmenntaðs fólks eins og Íslendingar vilja vera.Önnur trúarbrögð virðast mér ekki prédika manndráp og eru þau því mér að meinalausu þó sérviska þeirra sé mér framandi.
Íslam með Gyðingahatri eins og danski Imaminn var nýlega gripinn með að prédika eru hinsvegar ósamrýmanlegt vestrænu lýðræði og má alls ekki leyfa að þrífast í slíkum löndum. Gagnvart þessum meinvætti eins og Íslam sýnir sig að vera á Vesturlöndum sem stjórnmála- eða spillingarafl, þarf að spyrna á móti á öllum sviðum með innflutningshindrunum fólks af þessum trúflokki. Trúfrelsi stjórnarskrár getur ekki átt við trú á réttmæti ofbeldis og siðleysis eins og Íslam prédikar.
Íslam eru nefnilega ekki trúarbrögð eingöngu heldur framandi heimspeki- og stjórnmálastefna sem er ósamrýmanleg vestrænu siðgæði.