virðast margir telja að séu æskilegir til þess að "hagræða" í rekstri.
Adam Smith sagði eitthvað í þá vera eitt sinn, að hvenær sem tveir eða fleiri viðskiptamenn hittust þá væri samsæri gegn almenningi í gangi.
Nú berast tíðindi af því að Mogginn og Fréttó séu að sameinast um að reka dreifingarþjónustugegn Íslandspósti sem þeir kalla einokunarfyrirtæki. Í stað þess að vera heilagt fyrirtæki landsmanna eins og Lögreglan eða US Mail til dæmis, þá er búið að rýra stöðu þess með afnámi einkaleyfa til póstdreifingar.
Olíufélögin hafa rekið Olíudreifingu um árabil athugasemdalítið.
Nú berast fregnir af stórkostlegu tapi íslenskra flugfélaga sem nemur milljörðum. Warren Buffet hefur fyrir löngu lýst því að hann telji lítt ráðlegt að fjárfesta í flugfélögum.Af einhverju stafar það enda sjá menn hversu auðvelt það er að tapa á slíkum rekstri þegar saman fer dýr útbúnaður, mikið mannahald og rekstur sem er svo háður eldsneyti á heimsmarkaði.Svo kaupa Samkaup allar Iceland verslanir og 5 10-11 búðir.
En flugþjónusta er nauðsynleg og hefur minnkað heiminn fyrir almenning verulega.
Hvað geta Íslendingar gert núna í sínum flugmálum? Verða þeir ekki að sameina WOW og Icelandair til að "hagræða"? Alveg eins og Mogginn og Fréttó verða að taka upp nánara samstarf? Er einhver grundvöllur til að gefa út tvö blöð þegar eitt dugar? Netútgáfur verða sífellt öflugri eins og t.d. Altinget. Er alþjóðleg samkeppni ekki þannig að eitthvað verður að gera ef menn eigi að lifa af? Getur þessi samkeppnisrekstur haldið svona áfram? Hvenær verður ekkert íslenskt flugfélag eftir og lækka verðu allan lífeyri í landinu af þeim sökum?
Hið oft kynduga Samkeppniseftirlit Íslendinga þvælist fyrir í vinsælum málum en gerir svo oft ekkert þegar eitthvað skiptir máli.
Samrunar virðast vera í farvatninu þar sem tekist verður á um grundvallaratriðin, eitthvað eða ekkert..