blasir það ekki við í landlausum Kópavogi?
Hvað erum við að þvælast með golfvöll inni í miðjum bæ? Sport fyrir fáeina útvalda? Er ekki hægt að byggja háhýsi á þessum víðáttum og fá inn útsvarsgreiðendur?
Eða þá breiðu af illa þefjandi mengandi hrosshúsum? Er ekki búið að ráðstafa gamla Glaðheimasvæðinu og allir ánægðir?
Í alvöru þá er Kópavogur bráðhuggulegur bær um þessar mundir. Gróðurinn aldrei verið fallegri.
En eru bæir fyrir almennt fólk sem vantar húsnæði til að búa í eða einhverja fáa?
Er ekki eitthvað skipulagsflotterí í gangi sem við höfum bara ekki nein ráð á?