er nýtt sem Páll bloggarakóngur defínerar í dag.
"Það er helst í málefnum innflytjenda sem skerst í odda með bandarískum sósíalistum og Trump. Ocasio-Cortez vill afnema ICE, ríkisstofnun á sviði innflytjendamála. En hún mun seint boða óheftan innflytjendastraum til Bandaríkjanna. Það kæmi niður á hagsmunum skjólstæðinganna, sem keppa við innflytjendur um atvinnu og húsnæði.
Trumpsósíalismi er blanda af íhaldssemi og framsækni í þágu milli- og lágtekjuhópa. Stefna af þessu tagi gæti gefið tóninn í bandarískri pólitík næstu árin. Vel að merkja undir öðru nafni. Verði barn í brók fær það kannski heitið ameríkusósíalismi."
Það er akkúrat þessi hugsun sem hann Vance er með til meðferðar í bók sinni "Hillbilly Elegy" úr tyðbeltinu bandaríska þar sem hann skýrir uppgang Trumps á sannferðugan hátt. Það eru gömlu bandarísku landnemagildin sem eiga meiri þátt í þjóðlífinu þar en Evrópubúar fá nokkru sinni skilið.
Trumpsósíalismi er gott hugtak.