Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Helga Vala tekur lygakeflið af Þorvaldi

$
0
0

Gylfasyni varðandi þjóðaratkvæðagreiðsluna um tillögur stjórnlagaráðs um nýja stjórnarskrá. 

Það frumvarp Þorvaldar var auðvitað ónothæft með öllu vegna vífillengjustíls hans og ruglandi og auk þess rökvillna þar sem hvað rak sig á annars horn í textanum.

Hann heldur því ítrekað fram að frumvarpið hafi verið samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu með yfirgnæfandi meirihluta. Það er búið að margreka það ofan í hann að þátttakan var svo léleg að þrír fjórðu landsmanna greiddu ekki atkvæði.Ómerkilegheit prófessorsins eru hinsvegar með þeim hætti að hann hamrar lygina í tíma og ótíma væntanlega í stíl Jósefs Göbbelsar um að einhverjir trúi ef lygin er endurtekin nógu oft.

Það þarf engan  að undra að flokkssystir hans Helga Vala sem er ekki síður þekkt fyrir ómerkilegheit í málflutningi tekur upp flaggið fyrir meistara sinn.

Hún segir:

".... Nýja stjórnarskráin var borin undir þjóðina með þjóðaratkvæðagreiðslu 20. október 2012 hvar 73% kjósenda samþykktu að tillögur stjórnlagaráðs skyldu lagðar til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá.

Þjóðarviljinn var virtur að vettugi, enn bíðum við. Þegar rætt er um lítið traust á stjórnmálum tel ég fullvíst að þessi vanvirðing við þjóðarvilja eigi þar stærstan þátt. Það er ekki í boði að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu og fylgja ekki niðurstöðunni.

Klárum málið og gefum þjóðinni nýja stjórnarskrá í fullveldisafmælisgjöf. Hún á það skilið".

Mér er raun að því að Mogginn minn virðist ekki hafa annað að gera við miðopnu sína en að birta svona endemis bullugreinar eftir þessa Helgu Völu, hvað þá ekki skrif eftir Björn Leví sem varla heldur þræði í skrifum sínum og hefur kostað þjóðina milljónatugi með bullufyrirspurnum sínum á Alþingi eins og til dæmis þá til Steingríms J. Sigfússonar um það hvaða óskráðar hefðir gildi á Alþingi og óskar eftir skriflegu svari.

Mogginn má vanda sig meira í því hvað hann ber á borð fyrir skyni borna lesendur sína.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922