í íslenska Borgarpólitík ef hugleiðingar hennar um bandarískar plantekrusögur af svörtum húsþrælum og útiþrælum í stíl Malcolm X eiga erindi við reykvískra kjósendur? Aðrar hugleiðingar hef ég ekki séð frá henni.
Ef þetta er ástæðan fyrir því að hún vill ekki starfa með Sjálfstæðisflokknum í Borgarstjórn þá eru það í sjálfu sér góðar upplýsingar. Hún er líklega ekki af okkar heimi nema hún talar eins og við og lítur út eins og við. En hún er stödd einhversstaðar annarsstaðar en hérlendis og kannski ekki einu sinni með foringjanum Gunnari Smára Egilssyni, sem er mér algerlega mystisk persóna í pólitík.
Þetta er fólkið sem hefur boðið sig fram til að taka ákvarðanir fyrir Reykvískan veruleika. Afleiðingin er að Reykvíkingar fá aftur gamla meirihlutann til valda í boði Sönnu. Nýr Dagur er runninn upp.
Það var allt hennar sannlega erindi.