Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Þetta er Viðreisn

$
0
0

sem Sjálfstæðismenn eiga að taka sem samstarfsaðila!

Svo skrifar Styrmir Gunnarsson:

"Það er ótrúlegt hvað Evrópusambandið og liðsmenn þess ganga langt í að brjóta niður lýðræðislega stjórnarhætti í aðildarríkjunum.

Nú hefur forseti Ítalíu komið í veg fyrir myndun ríkisstjórnar Fimm stjörnu hreyfingarinnar og Norðurbandalagsins með því að hafna fjármálaráðherraefni meirihluta ítalska þingsins! Og sett embættismann í staðinn sem forsætisráðherra til bráðabirgða.

Fyrir allmörgum árum beitti ESB afli til að koma lýðræðislega kjörnum forsætisráðherra (Berlusconi) frá völdum á Ítalíu.

Um svipað leiti braut ESB á bak aftur ákvörðun lýðræðislega kjörinnar ríkisstjórnar í Grikklandi um að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um skuldasamninga Grikkja.

ESB er að verða lýðræðinu hættulegt."

Þetta er flokkur Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur og Benedikts Jóhannessonar. Er þessi flokkur ekki eitrað peð fyrir Sjálfstæðisflokkinn? Nýlega er fram komið hjá prófessor í stjórnmálafræðum að uppistaðan í Viðreisn er ekki að koma frá Sjálfstæðisflokknum og hefur aldrei komið þaðan. Þetta er brot úr Samfylkingunni og Alþjóðakrataismanum.

Viðreisn er alger höfuðandstæðingur Sjálfstæðisflokksins sem hann má aldrei þjóna undir.

Viðreisn er þannig alger viðbjóður fyrir Sjálfstæðisflokkinn og sjálfstæðisstefnuna.

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922