er búin að vera um þessar mundir.Eftir Reykholt er stórhættulegt að lenda ofan í djúpum holum sem geta brotið bílbeyglur.
Það verður að setja í lágadrifið til að fara gömlu Tungufljótsbrúna. En samt eru holurnar í malarveginum niður á Flúðaveg skárri en Biskupstungnabrautarholurnar af því að það er alls staðar botn í þeim og mýkri barmar.
Allt þetta er vegna rútuumferðarinnar sem þembir veginn sínkt og heilagt. Með farþega af skemmtiferðaskipunum sem koma dag hvern í Reykjavíkurhöfn. Blása út megawöttum af mengun og borga varla neitt fyrir að koma.Rúturnar niðurpíndar í verði af milliliðunum svo að þær opna ekki klósettin fyrir fólki í spreng. Háskólaborgarar sem gædar píndir niður úr verkamannatöxtum til að tala við farþegana útlensku á Gullhringnum. Farþegarnir mest blánkir alþýðuljónar sem gefa ekkert þjórfé.
Þessu þarf að breyta.
Viðgerðaflokka verður að senda strax í dag að gera við. Komugjöld verður að leggja á skipin svo að peningar fáist fyrir vegaskemmdunum.
Landrafmagn skulu þau öll kaupa. Athuga þarf skilyrði hverjir megi selja í Gullhringi og það vantar samkeppni í greiðasölu við þessa staði þjóðarinnar.
En eins og venjulega þá gerist ekki neitt á Biskupstungnabraut eða Gullhringnum hvort sem ríkið kaupir land eða ekki.