um göfugan tilgang þess að sjúga sér fé úr ríkissjóði finnst mér vera að finna í yfirlýsingu framkvæmdastjóra stjórnmálaflokkanna.Svo segir í fréttum:
"Framkvæmdastjórar allra flokka sem sæti eiga í nefnd forsætisráðherra um fjármál stjórnmálaflokka, lýsa andúð á óhróðri og undirróðursstarfsemi í kosningabaráttu og ásetja sér að vinna gegn slíku.
Kosningabarátta í aðdraganda kosninga er lykilþáttur í lýðræðislegri stjórnskipan og mikilvægt að hún sé málefnaleg og reglum samkvæm svo að kjósendur geti tekið upplýsta ákvörðun. Nafnlaus óhróður eða undir fölsku flaggi á ekki að líðast. Við framkvæmdastjórar eða fulltrúar flokkanna átta sem sæti eiga þingi, erum sammála um að girða þurfi fyrir að áróður og óhróður, sem enginn veit hver hefur í frammi eða kostar, birtist um alla samfélags- fjölmiðla- og myndbandaveitur, án þess að hægt sé að kalla neinn til ábyrgðar.
Kosningabarátta er margslungið samtal þjóðarinnar og þar eiga stjórnmálaflokkarnir alls ekki að vera einráðir. Lög um hvernig kosningabarátta er rekin og fjármögnuð, þurfa því að ná yfir alla sem heyja slíka baráttu, en ekki aðeins flokkana sjálfa, enda séu lögin í samræmi við tjáningarfrelsisákvæði og góða lýðræðisvenju. Það er markmið okkar að finna leiðir í þeirri vinnu sem við eigum fyrir höndum til að auka gagnsæi og ábyrgð allra sem vilja hafa áhrif á kosningar.
Nú er hafin barátta fyrir sveitarstjórnarkosningar á Íslandi. Það er von framkvæmdastjóra flokkanna að sú barátta verði sönn, gegnsæ og málefnaleg og að öll framboð taki stöðu með flokkunum sem undir þetta rita um það markmið.
Björg Eva Erlendsdóttir, form. frkvstj. Vinstri grænna.
Þorgerður Jóhannsdóttir, skrifstofustj. Samfylkingar.
Birna Þórarinsdóttir, frkvstj. Viðreisnar.
Hólmfríður Þórisdóttir, fulltrúi. Miðflokksins.
Erla Hlynsdóttir, frkvstj. Pírata.
Helgi Haukur Hauksson, frkvstj. Framsókn.
Magnús Þór Hafsteinsson, fulltrúi. Flokks fólksins.
Þórður Þórarinsson, frkvstj. Sjálfstæðisflokksins."
Mér finnst það ömurlegt að Sjálfstæðisflokkurinn skuli standa að þessari yfirlýsingu með litlu flokkunum.
Þeir hafa auðvitað allt að vinna þar sem þeir geta ekki séð sér farborða sjálfir. Þeir byggja ekki á neinu nema sundurlausu hugarflugi og slagorðavaðli um sjálfsagða hluti eins og að vinna gegn spillingu og vinna að betra þjóðfélagi. Hver vill það ekki?
En stjórnmálaflokkar finnst mér að eigi að vinna eftir sömu reglum og önnur félagasamtök. Saumaklúbbar, íþróttafélög og hverskyns góðgerðasamtök eiga að starfa eftir almennum reglum félaga en ekki vera tilberar á ríkissjóði. Menn koma saman í ákveðnum tilgangi og leggja fé sitt í lag til að vinna máli sínu framgang.
Stjórnmálaflokkar hafa þá sérstöðu að geta krækt sér í almannafé til eigin nota. Það geta ekki önnur félög. Þarna er því bein leið til spillingar sem önnur félög hafa ekki.
Sjálfstæðisflokkurinn getur staðið á eigin fótum fjárhagslega. Það sýndi styrktarmannakerfið þegar til þess var stofnað. Fáir aðrir aðrir flokkar hafa slíka breidd. Píratar eða Flokkur fólksins myndu til dæmis aldrei geta safnað pening til að borga húsaleigu fyrir skrifstofu og hinir litlu flokkarnir ættu í basli með það. Þeir eru því óþarfir með öllu ef fólk vill ekki styrkja þá í nægum mæli.
Það kostar vinnu að safna peningum fyrir stjórnmálaflokka, það þekki ég af eigin raun. Ef flokksmenn eru of latir til þess þá eiga þeir ekki tilverurétt.
Sé þessi yfirlýsing skoðuð i samhengi við áætlanir um að stórauka sjálftöku peninga úr ríkissjóði þá rennur væntanlega upp ljós fyrir mönnum.
Stjórnmálastarf er orðinn bísness hjá allskyns litlum og misljótum klíkum sérvitringa sem þjóðfélaginu verður lítið gagn af til lengdar. Geti framboð náð saman einhverju lágmarksatkvæðamagni þá komast þau í ríkispeninga. Það er mergurinn málsins. Og þá byrjar yfirleitt ballið eins og uppákomur hafa margsýnt að ekki eru allir tilbúnir að skipta rétt eins og Egill Skallagrímsson sá fyrir sér þegar hann ráðgerði að strauja silfrinu yfir þingheim.
"Meirihluti fjárlaganefndar hefur gert tillögu um að framlög til stjórnmálaflokka verði hækkuð um 362 milljónir króna á næsta ári. Framlögin verða þá 648 milljónir króna og vaxa 127 prósent frá því sem áður var ætlað að myndi renna til málaflokksins. Þetta kemur fram í nefndaráliti meirihluta fjárlaganefndar sem nefndarmenn stjórnarflokkanna þriggja skrifa undir þá vilja menn að framlög til stjórnmálaflokka verði aukin um 362 m króna
Í álitinu kemur fram að tillagan sé studd með yfirlýsingu sex formanna stjórnmálaflokka sem sæti eiga á Alþingi. Þeir eru Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur, Vinstri græn, Samfylking, Miðflokkur og Viðreisn..."Til samanburðar má nefna að dómsmálaráðuneytið hefur sagt að kostnaður vegna alþingiskosninganna á síðasta ári hafi verið rétt tæpar 350 milljónir, og að gera mætti ráð fyrir að hann yrði svipaður í ár. Stjórnmálasamtök starfa í þágu almannahagsmuna en hafa hvergi nærri bolmagn á við helstu hagsmunasamtök. Flestir flokkar eru reknir með 0-5 starfsmönnum í dag og samtals eru 13 fastráðnir starfsmenn hjá þeim átta flokkum sem eiga fulltrúa á Alþingi.
Til samanburðar má 1 geta að Samtök atvinnulífsins eru með 30 starfsmenn, Samtök iðnaðarins 16, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi 15, ASÍ með 22 og VR 62 starfsmenn. Í þessu umhverfi er stuðningur við nýsköpun, þróun, sérfræðiþekkingu og alþjóðatengsl enginn inni í stjórnmálasamtökunum; endar ná ekki saman til að sinna grunnþörfum í rekstri stjórnmálaflokka og að uppfylla markmið laganna. Lýðræðið á Íslandi á betra skilið.“
Í mínum augum er þetta grímulaus atlaga að eyri ekkjunnar í ríkissjóði og ekkert annað en grímulaus spilling rétt eins í Afríku þar sem harðstjórar stela ríkiskassanum eins fljótt og þeir geta.
Þannig eru þeir Heródes og Pílatus orðnir vinir:
"... nefndarmenn stjórnarflokkanna þriggja skrifa undir þá vilja menn að framlög til stjórnmálaflokka verði aukin um 362 m króna..."
Í stað þessa athæfis hefði ég viljað að ríkisstyrkirnir myndi ganga til viðar eftir sólarlagsákvæðum og stjórnmálastarf færi af ríkisframfæri alfarið, þá er sjálftakan tvöfölduð. Það er ekki að mínu skapi.
Mér finnst ekki vera sæmandi fyrir Sjálfstæðisflokk afasystur minnar Ingibjargar H. og Jóns Þorlákssonar að standa að svona sókn í ríkispeninga.Siðferði hinna flokkanna ætla ég ekki að ræða frekar en í þeirra eigin útgáfu er hún alveg ný af nálinni og á móti hverskonar spillingu sem þeir segja að einkenni Sjálfstæðisflokkinn öðrum flokkum frekar.
Mér finnst því vera holur hljómur í yfirlýsingu framkvæmdastjóranna og lágkúruleg samanburðarfræði stjórnmálaflokkanna að bera sig saman við önnur frjáls félagasamtök sem eru rekin af eigin félagsmönnum.