að bandarískur landhermaður hefur fallið fyrir óvinaflugvél.Slíkir hafa yfirburðir bandarísku flugherjanna verið í lofti,
Bandarískur offursti (ret) Keith Zuegel óttast að Bandríkjamenn verði ekki svo heppnir önnur 65 ár. Ástæðan er sú að endurnýjun flugflotans er orðin langt á eftir þörfinni.
Fimmtu kynslóðar orrustuvélar með felueiginleikum þarf í dag til að lifa af í loftvarnaumhverfi og aðeins F35 Lightning ll Joint Strike Fighter er eina vélin sem er í framleiðslu meðal bandalagsþjóðanna allra sem getur uppfyllt þessar kröfur.
Rússland og Kína hafa þegar náð Bandaríkjunum í fimmtukynslóðar vélum og tölvuöryggi og eru komnir fram úr þeim í ofurhraða flugskeytum og tækni.
Bandaríkin hafa núna elstu og minnst viðbúnu orrustuflugsveitir í sögunni.Síðan í Flóabardaga hefur flugflotinn dregist saman úr 134 flugsveitu í 55.Þeir eru aðeins að kaupa 56 F-35 í ár þegar þarf að fá 80-110 á hverju ári.
Hvaðan á okkar öryggi á Vesturlöndum að koma á næstu árum? Lýðræðisríkin eiga í vök að verjast gagnvart einræðisríkjunum eins og fyrr sem geta kúgað þegna sína til undirgefni með ofbeldi.
Við verðum að horfast í augu við ógnirnar sem stafa af vaxandi yfirgangi Kínverja meira heldur en Rússanna sem er ekki í friðsamlegum tilgangi gerður.
65 ár bandarískra yfirburða í lofti geta verið liðin hjá.