Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Ingimundur í Heklu

$
0
0

eins og hann heitir ávallt í mínum huga er fallinn frá. Nánast jafnaldri minn.

Kynni okkar Ingimundar hófust fyrir einhverja tilviljun. Við vorum að tala saman út af einhverju öðru sem ég man ekki lengur hvað var. En þá barst í tal flug sem höfðum báðir greinilega áhuga á og hann spurði umsvifalaust um það hvort ég vildi ekki koma í hóp manna sem væru að kaupa Skymaster C337 til landsins og væru að setja hana á skrá með nýjum mótorum og skrúfum.

Þar með voru örlögin ráðin held ég 1977. Ég fór á fund með Ingimundi þar sem fyrir voru menn sem ég þekkti lítið til en áttu sumir eftir að verða áhrifavaldar í mínu líf og stórvinir. Þarna voru fyrir  Ingimar Sveinbjörnsson, Friðrik Pálsson, Þorsteinn Þorsteinsson, Björn Emilssson og Jón E.B, Guðmundsson minnir mig en Gunnar Sveinbjörnsson var fjarstaddur. Ég vissi nú varla hvernig  þessi vél liti út. Og greinilegt var að þetta var dýrt fyrirtæki fyrir blankan mann eins og mig og eiginlega galið að vera að þessu.

Ég  endaði með því að elska þessa  vél meira en nokkurn dauðan hlut og fljúga henni í nærri þúsund klukkustundir  þar til að að ég varð að selja hana eftir hrunið 2008. Eftir það datt eiginlega botninn úr fluginu hjá mér enda orðinn talsvert eldri. „Ég hef selt hann yngra Rauð..“.orti hann Páll Ólafsson

 Var hún annars dauður hlutur? Ég er  hreint ekkert alltaf viss um það eins og rithöfundurinn Richard Bach sem átti samtal um nótt við svona Skymaster vél.Ég átti það til að kyssa hana á nefið þegar ísinn var að bráðna af henni í flugskýlinu eftir lendingu.

En hópurinn þessi sem þarna var mættur átti það sameiginlegt að eiga ekki peninga til alls sem með þurfti. Ingimundur hafði mikla forystu um fjármál hópsins og útvegaði lán fyrir tryggingum og fleiru. Og það vantaði líka fljótlega flugskýli sem þurfti að byggja. En þetta tókst allt með tímanum.

En þarna byrjaði ósvikin vinátta okkar Ingimundar. Hann var svo hjartahlýr maður sem faðmaði vini sína að sér og þau faðmlög urðu strax gagnkvæm og vináttan ósvikin. Friðbert endurskoðandi hans var nú ekki par hrifinn af mér eða neinu sem viðkom þessari flugvél því hann hafði allt á hornum sér og var óspar á að segja að hann Ingimundur hefði ekki ráð á þessu og þyrfti endilega að hætta.

 En Ingimundur var tryggur félagsmaður lengi þar til að hann fékk nóg og seldi sinn hlut.Í hans stað kom Hinrik Thorarensen og ekki var hann mér minna happ en margt annað í lífinu, slíkur öðlingur sem hann var. Það urðu með tímanum ýmis eigendaskipti í hópnum en svo fór að síðustu áratugina átti ég vélina einn sem var auðvitað erfitt og ósanngjarnt gagnvart fjölskyldunni sem lét sig blessunarlega hafa það.

En áður hafði ég fengið þann heiður að fljúga fyrir Ingimumd  ýmsa túra. Sá eftirminnilegasti var þegar hann bað mig að fljúga með vin sinn Benny nokkurn Goodman til Blönduóss. Þar tók Ingimundur mynd af okkur Benny og sendi mér seinna áritaða  og er þessi dýrgripur í hávegum hjá mér. En Benny var hálfguð hjá okkur strákunum upp úr miðri öldinni.

Svona er heimurinn stundum  lítill og Benny sagði við mig þegar hann steig út á Blönduósi með klarinettkassann í hendinni:“Nice little plane“ og virtist ekkert hafa spáð í að hann var að fljúga með reynslulitlum hálfvita sem var nýskriðinn úr atvinnuflugskólanum. En Ingimundur hafði traust á mér og lét mig hiklaust fljúga sér þegar svo bar undir.

Ingimundur stóð í stórframkvæmdum á Þingeyrum og fól mér að teikna þar lagnir í mikið bændahús og tókst það held ég sæmilega og stendur það að minnsta kosti enn.

 Samskipti okkar voru talsverð á þessum árum og vináttan óx og faðmlögum fjölgaði. Aldrei bar skugga á í okkar samskiptum. En hann var samt ófeiminn að segja sínar skoðanir og hann hellti sér yfir mig fyrir slæman umgang  í malarnáminu á Esjubergi sem fór í hans fínustu og ég átti alveg skilið.

Árin liðu og Ingimundur vann mikið starf fyrir  Sjálfstæðisflokkinn okkar sem fjármunasafnari áður en stjórnmálaflokkar voru gerðir að ölmusuþegum og ríkistilberum af tillitssemi við kommana sem ekki gátu bjargað  sér  sjálfir og voru í bráðri útrýmingarhættu sem gjaldþrota stjórnmálaflokkar.Er skömm okkar Sjálfstæðismanna mikil fyrir að hafa tekið þátt í þessu.En við vorum sjálfbjarga vegna stærðarinnar og samheldninnar.

Ingimundur varð svo sendiherra í Þýskalandi og hittumst við þar. Þar var sama fölskvalausa vináttan af hans hálfu en svo hellti hann sér endurtekið´yfir mig vegna frágangsins í námunum sem var kannski ekki fullkominn þó bestnað hefði. Eftir þetta sáumst við sjaldnar en ávallt fagnaði hann mér sem besti bróðir við þau tækifæri.

Og nú er hann fallinn frá eins og flestir sem komu að eigendahópi TF-SKY og ég veit ekki hvar hún sjálf er niðurkomin lengur,. En blessuð sé minning Skæjarans sem færði mér svo óendanlega mikið af sælustundum og uppeldi.Og  svo ekki  síst af vináttu góðra manna eins og Ingimundar Sigfússonar.

Það er eitt af því dýrmætasta sem menn eignast í lífinu utan fjölskyldu sinnar er kunningsskapur og vinátta við góða menn. Ingimundur í Heklu var þeirrar gerðar að hann stendur upp úr ásamt með nokkrum öðrum slíkum.

Einn af þeim sem ég kynntist fyrir tilstilli Ingimundar þetta kvöld var Ingimar Sveinbjörnsson flugstjóri. Einn af reyndustu flugmönnum landsins og prófdómari í blindflugi sem mörgum stóð ógn af. Sá maður tók mig að sér í fluginu á Skæjaranum og af honum lærði ég eiginlega allt það litla sem ég lærði um flugið á nærri fjórum áratugum. Endalaust þolinmóður við tregan nemandann sem flaug með hrömmunum og fílshreyfingum þegar Ingimar hrópaði upp yfir sig að meðhöndla vélina eins og fallega konu. En námið hafðist af og mér tókst að ljúka blindflugsprófinu þó sjálfstraustið  væri ekki upp á marga fiska.Enda hófst þá flugnámið fyrir alvöru og lauk aldrei   

Aðrir viðstaddir urðu allir vinir mínir ævilangt. Ingimundi í Heklu fæ ég því seint fullþakkað að hafa boðið mér á fundinn góða fyrir svo margt löngu, slíkrar  gæfu sem ég varð aðnjótandi í framhaldi af þessu kvöldi.

Hann Ingimundur í Heklu kemur mér gjarnan í huga þegar ég heyri góðs manns getið.

 

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922