Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Góð þögn

$
0
0

hjá Sigmundi.

Dettur einhverjum í hug að Árni Páll í einhverskonar spámannsgervi á bak við nýtt alskegg sé að leita að einhverjum sannleika þegar hann krefst svara við einhverjum meintum ásökunum sínum í garð Sigmunds Davíð? 

Heldur einhver að hann sé í frómum tilgangi að reyna að varpa sanngjörnu ljósi á einhver m0guleg sakarefni? Eða hver annar stjórnarandstæðingur sem er með sömu rullu.

Henry Ford hafði fyrir reglu: " Kartaðu aldrei. Útskýrðu aldrei" Þannig á að svara ómerkingum eins og þusa um þetta mál niðri á Alþingi. Sigmundur á sjálfur að ákveða hvað hann segir og hverjum hann svarar. Sama mættu fleiri sjórnarþingmenn gera í stað þess að útbía sig sjálfa á því að munnhöggvast við þetta uppbelgda stjórnandstöðulið sem engin völd hefur.  Við skuldum þeim ekkert en kjósendur skulum við fúslega tala við í komandi kosningum.

Þetta er góð þögn og verðskulduð hjá Sigmundi því hann skuldar Árna Páli ekki neitt. Okkur er slétt sama hvað hann segir.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922