eftir gerningahríð lyga, ruglandi og rangfærsluáburðar þeirra Pírata- og Samfylkingarpostula sem hæst hafa látið.
RÚV reynir að þjóna sínum herrum og milda málið fyrir þetta lið með vífillengjum og vitleysu sem ekki koma meginniðurstöðunni við. Sigríður fór í einu og öllu eftir lögumvið skipan dómaranna í Landsrétt jafnvel þótt dómaraklíkan hafi reynt í gegn um Hæstarétt að gera málið öðruvísi en það er með þeirri fáheyrðu niðurstöðu sinni að manni sem ekki hlýtur embætti við umsókn sína beri skaðabætur frá Alþýðufólki Íslands í gegn um ríkissjóð!
Fannst einhverjum Hæstiréttur vaxa við þessa niðurstöðu?
Álíka furðulegur dómur féll í Hæstarétti um óskilgreinda óskipta skaðabótaábyrgð annars deiluaðila í stangveiðimáli í Tungufljóti. Í dómnum er ekki gerð nein tilraun til að meta málsástæður heldur bara kveðið upp úr með að annar aðili skuli greiða hinum ómældar skaðabætur án nokkurrar sönnunar hans á að tjón hafi yfirleitt orðið. Dómurinn þessi er hér:https://www.haestirettur.is/
Gersamlega álíka óskiljanlegur fyrir venjulegt fólk eins og dómurinn um skaðabætur til þess sem ekki hlýtur embætti með umsókn.
Það þarf greinilega að vanda betur valið næst þegar skipa þarf dómara í Hæstarétt og láta þá sem fyrir eru á fleti þar ekki koma að því vali.
Sigríði Andersen er treystandi til að skera þetta ferli upp og endurheimta hið pólitíska skipunarvald úr höndum ókjörinna klíkunefnda út í bæ.