Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Hrekkjatilburðir

$
0
0

sýnast manni nokkrir af hálfu Framsóknardrógarinnar í ríkisstjórnarsamstarfinu.

Það kann ekki góðri lukku að stýra þegar skoðanamunur er viðraður með þeim hætti sem Framsóknarmenn gera. Já og beinir löðrungar eins og Eygló úr Eyjum réttir Gulla beint á snúðinn.

Það er vandfundinn sá Íslendingur sem vill setja 8 milljarða í aukið fæðingarorlof fyrir feður í stað þess að gera eitthvað annað við þá. Varla verður því trúað að ráðherran sé óvart svona vitlaus að gera annað eins og þetta að eigin frumkvæði. Það býr meira undir.

Forsætisráðherra er hugsanlega farinn að ókyrrast yfir gæftaleysi Framsóknar í samstarfinu. Fylgið hrynur og hrynur með Sjálfstæðisflokkurinn hangir á sínu fjórðungsfylgi. Menn geta alveg farið að búast við meiri tíðindum án þess að rýtingsstunga RÚV í bak Sigmundar dag verði túlkuð sem ákall um endurreisn vinstri stjórnar Samfylkingar og VG. En við skulum ekkert gleyma því hver var Guðfaðirinn að myndun þeirrar stjórnar þó að það spryngi allt í fésið á honum þegar þeir þurftu hans ekki með lengur.

Gleymum því ekki Sjálfstæðismenn að það verður að ríða Framsóknartruntunni við stangabeisli og stífa keðju og helst nasamúl líka, annars getur hún hlaupið illilega útundan sér þegar minnst varir. Það getur þurft að hafa þunga ól í hendinni og slá duglega í ef hún ætlar að vera með hrekkjatilburði.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922