Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Vesturlandsvegur

$
0
0

er komin í umræðuna. Fólk vill tvöföldun vegarins að Hvalfjarðargöngum.

Ólafur Guðmundsson hélt stórmerkt erindi um umferðaröryggi á fundi Sjálfstæðismanna í Kópavogi fyrir viku. Þar sýndi hann í tölulegum staðreyndum hvernig vegabætur fækka slysum og skila margföldum hagnaði til lengdarinnar litið.Glögglega mátti sjá hversu vegabæturnar á Hellisheiði hafa skilað auknu umferðaröryggi.

Líklega er ekkert hægt að gera betra í slysaforvörnum en að skilja akstursstefnur þjóðvega að með girðingum. Það er því að vonum að vestlendingar vilji fá umbætur á Vesturlandsveginum.

Jón Gunnarsson flutti hinsvegar það mál í sinni ráðherratíð að of seint myndi ganga að framkvæma nauðsynlegar vegabætur á Íslandi ef aðeins ætti að framkvæma fyrir það litla fé sem Alþingi gæti úthlutað á fjárlögum. Notkunargjöld yrðu að koma til ef framkvæma ætti hið nauðsynlega með nægilegum hraða.Úrtölufólk var auðvitað ekki lengi að reka upp ramakvein og afturhaldssöng.Krafist var að fella niður gjöld í Hvalfjarðargöng í stað þess að safna fé til að grafa ný og halda þessum við. Jóni entist ekki ráðherraaldur til að reka sinn áróður nógu lengi og nú er allt komið í sama ráðleysið aftur. 

Nú vilja menn tvöfalda Vesturlandsveginn. Þá má benda á að vegurinn í Kollafjörð var steyptur fyrir nærri hálfri öld og hefur ekki verið viðgerður síðan. Kostnaðarauki vegna þykkrar steypu frá ónýtu þunnu malbiki var óverulegur. Endingin er hinsvegar margföld.

Kollafjarðarvegurinn liggur í gegnum steypuefnisfjöruna sem þá var notuð. Nú er spurn hvort engum detti í hug að steypa akreinarnar upp að göngum? Það er til vél í landinu sem getur gert þetta. Það er til sement og steypuefni og allur vélbúnaður. Og friður til að steypa er fáanlegur til tvöföldunarinnar.

En líklega þarf ekki að tala um neitt slíkt. Það er erfitt að fá að hugsa fram í tímann eða spá í hlutfall endingar á móti frumkostnaði.

En hvers virði eru þau mannslíf sem sparast með aðskilnaði akreina á Vesturlandsvegi?

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922