þar sem einir 12 flokkar ætla að maka krókinn á framboðum til 25 Borgarfulltrúalauna og fríðinda.
Eru menn ekki búnir að fá nóg af að horfa á þá Dag Bé og Hjálmar deila og drottna í Borginni. Etja saman flokkum, múta og skjalla tætingsliðið til fylgilags við sig.Þú færð, þetta, þú færð hitt, sláum bara lán og meiri lán fyrir því sem það kostar. Borgin sekkur í skuldir meðan nágrannasveitarfélög borga niður.
Þeir einu sem fá að borga fyrir dellurnar í þessum mönnum eru vitleysingarnir sem kusu tætingsliðið en héldu að þeir væru að kjósa árangur gegn þessum mönnum.
Aðeins samstilltur hópur Sjálfstæðisflokksins getur snúið þessu Borgarlínubruni að hruni í Borgarbullinu við.
Takið þátt í leiðtogakjörinu hjá Sjálfstæðisflokknum á laugardag.