er margt eins og Íslendingar hafa lengi vitað.
Maður sem ég þekki er búinn að skemma á sér bæði hnéin á áratuga puði. Hann þarf að fá viðgerð. Þetta er hægt að gera inn í Ármúla fyrir tólfhundruð þúsund á stykkið á Klíníkinni í Ármúla.
Óttar Proppé er hálfkommi og hann sagðist ekki semja við einkareknar heilbrigðisstofnanir í fyrri ríkisstjórn. Bara ríkið skyldi framkvæma svona viðgerðir hvað sem það kostaði. Nú er Svandís Svavarsdóttir alkommi í embætti Óttars. Hún semur heldur ekki við einkarekin sjúkrahús hérlendis og er auðvitað jafnkostnaðarblind og aðrir vinstrimenn. Kompaníið við íhaldið skiptir hér engu máli þegar hugsjónirnar eru annars vegar.
Biðlistinn er lengri en þrír mánuðir á blanka ríkisheilbrigðinu hér á Íslandi. En það vill svo til að Íslendingar eru í EES fyrir tilverknað gamla kommans Jóns Baldvins með stuðningi íhaldsins. Sem þýðir að í slíku tilfelli má leita út fyrir landsteinana eftir aðgerð.
Ein hnéaðgerð kostar tvær og hálfa í Svíþjóð og maðurinn fær að fara þangað í viðgerð á fyrra hnéinu á kostnað íslenska ríkisins. Hann mætti samt borga allt sjálfur ef hann fer inn i Ármúla sem hann vill skiljanlega ekki, Svo fær hann auk þess að sjá Svíþjóð í fyrsta sinn í leiðinni.Í staðinn fær Bjarni Ben að skattheimta alla Íslendinga til að borga brúsann.
Já það er margt merkilegt í kýrhausnum og hagsýni vinstri sinnaðra Íslendinga sömuleiðis.