Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Skuldadagar

$
0
0

hjá Íslandi og samferðamönnum í atkvæðagreiðslunni hjá Sameinuðu þjóðunum  gegn Bandaríkjunum vegna ákvörðunar þeirra að viðurkenna Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels og flytja sendiráð sitt í Ísrael  þangað.  Ekki hefur þó heyrst mikið um það að Bandaríkin hafi neitt sérstakt á móti því að Palestínumenn hafi aðsetur í Jerúsalem með sínar stjórnarskrifstofur eða að þeim leyfist ekki að hafa borgina í hávegum.

Atkvæðagreiðslan hefur hinsvegar orðið til þess að Bandaríkin hafa dregið einhverja milljarðatugi til baka sem þau  annars hefðu greitt til Sameinuðu þjóðanna sem stofnunar. Er við öðru að búast að þetta komi niður á fjárhag Sþ? Þýðir það ekki að aðrir verði að borga meira þegar þetta dregst frá?

Varla minkar yfirbyggingin sem þessu nemur? Vonandi þurfum við ekki að verja milljarði til að reyna að kaupa okkur sæti í Öryggisráðinu eins og Ingibjörg Sólrún reyndi fyrir sig með okkar peningum hér um árið og virðist alveg gleymt og grafið af því að vinstri menn áttu í hlut..Þýðir þetta ekki að Íslendingar muni þurfa að borga meira en áður til samtakanna?

Þýðir nokkuð að spyrja Guðlaug Þór eða ríkisstjórna Katrínar Jakobsdóttur um þetta atriði og hvenær komi að skuldadögum sannfæringarinnar hjá Sþ.?


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922